Morgunmatur - úr lífrænt ræktuðu korni Morgunmaturinn er ein mikilvægasta máltíð dagsins sem á að gefa okkur næringu og orku sem endist sem legst. Þetta er ekki síst mikilvægt fyrir börnin sem þurfa mikla orku í byrjun dags. Það er líka mikilvægt að þau hafi orku fyrir einbeitinguna í skólanum. Óunnið heilt korn er hentugast í morgunmatinn. Hafragrauturinn stendur alltaf fyrir sínu og ekki er það verra að hann sé úr lífrænt ræktuðum höfrum. Hann er bæði næringarríkari þannig og einnig bragðbetri. Rapunzel býður upp á mikið úrval af morgunkorni, kornflögurm og múslí. Múslíið frá Rapunzel er mjög bragðgott og fæst í mörgum mismunandi blöndum.
MANDEL-AHORN-CRUNCY - frá RAPUNZEL Inniheldur engan hvítan sykur – unnið úr heilum höfrum Allt hráefni lífrænt ræktað. Hafraflögur ristaðar í hlynsírópi og ristaðar möndluflögur. Hafrar eru mjög mettandi og ríkir af hollum fitusýrum. Hlynsíróp gefur yndislegt sætubragð en ólíkt hvítum sykri gefur það líka stein- og snefilefni.
ORIGINAL MÚSLÍ - frá RAPUNZEL Allt hráefni lífrænt ræktað enginn viðbættur sykur Innihald: Hveitiflögur, byggflögur, hafraflögur, sólblómafræ og heilar heslihnetur. Allt ristað. Einnig ljósar rúsínur sem gefa gott sætubragð. Enginn viðbættur sykur eða önnur sætuefni. ÁVAXTAMÚSLÍ - frá RAPUNZEL Allt hráefni lífrænt ræktað - Inniheldur 40% af þurrkuðum ávöxtum - enginn viðbættur sykur BASIS MÚSLÍ - frá RAPUNZEL Allt hráefni lífrænt ræktað - Inniheldur ekki hnetur og ekki þurrkaða ávexti - gott fyrir þá sem vilja útbúa sína eigin blöndu
Hvað er best að setja út á grautinn? Við mælum með lífrænu mjólkinni eða lífrænu AB-mjólkinni með múslíinu, en fyrir þá sem þola ekki mjólkurvörur mælum við með rísmjólk eða sojamjólk. Núna er líka komin speltmjólk sem er mjög ljúffeng. Lífræn ræktun gefur hágæða afurðir með hámarks næringarefnainnihaldi. Hollara sælgæti fyrir börnin -Úr lífrænt ræktuðu hráefni Þegar börnin fara að skilja hvað sælgæti er og vilja líka smakka, er þá ekki frábært að geta gefið þeim sælgæti sem ekki inniheldur hvítan sykur og ekki kakó? Carobella Candy bar og Carobella Cocosbar Candybar og Cocosbar innihalda carobduft sem er unnið úr jóhannesarbaunum og inniheldur bæði járn og B-vítamín. Til að fá sætt bragð er notað duft og síróp unnið úr heilu korni. Auk sætunnar inniheldur það steinefni og vítamín og hefur því önnur áhrif í líkamanum en hvítur sykur. Það hefur sýnt sig að mörg börn sem verða ofvirk af því að neyta afurða með hvítum sykri verða það ekki af sætuefnum eins og kornsírópi, rófusírópi eða óhreinsuðum reyrsykri. |








