Lífrænt ræktað inniheldur meira af næringarefnum og andoxunarefnum.

Samkvæmt nýjum áreiðan-legum rannsóknum þá inniheldur lífrænt ræktað fæði meira af næringarefnum og andoxunarefnum . Sjá nánar .

 

 

 

 

Holle Barnamatur - Lífrænn

Bestu gæðin fyrir barnið þitt!

 
Barnagrautarnir frá Holle eru sérstaklega unnir með það í huga að innihalda öll næringarefni kornsins.
 
  • Holle grautarnir Innihalda alla hluta kornsins og eru því trefjaríkir og innihalda öll næringarefni kornsins.
  • Holle grautarnir eru unnir úr fyrsta flokks hráefni sem hefur verið lífrænt- eða lífrænt biodynamiskt ræktað (demeter)en demeter er strangasta vottun í lífrænni ræktun.
  • Holle er eitt þekktasta merki í lífrænum barnamat í Evrópu.
  • Holle grautarnir eru hreinir grautar, sem innihalda ekkert annað en heila kornið.
 

Grautarnir eru fáanlegir í mörgum tegundum. rís, hafra, hirsi, 3-korna og spelt. Einnig er til þurrmjólk frá 1 mánaða og einnig frá 4 mánaða. Þurrmjólk úr geitamjólk er einnig til og er sérlega góður kostur fyrir þá sem eru með mjólkuróþol eða ofnæmi.   Einnig er fáanlegur í úrvali barnamatur í krukkum.

 Hvernig á að útbúa grautana?

Holle grautarnir eru þannig að nóg er að blanda þá með vatni. Vatnið er þá soðið og látið kólna og síðan hrært út í grautarmjölið. Hlutföllin eru 6-10 hlutar af vatni eftir því hvað við viljum hafa grautinn þykkan. Þegar á að gefa barni graut í fyrsta skipti á hann að vera þunnur vellingur.  Einnig er hægt að blanda saman mjólk og vatni í grautinn. Gott er að nota lífræna kúamjólk fyrir börn frá 6 mánaða aldri ef ekki er grunur um mjólkurofnæmi í fjölskyldunni. Ef notuð er kúamjólk er mikilvægt að blanda hana til helminga með vatni frá 6 mánaða.  Það er ekki fyrr en við 1 árs aldur að barnið má fá óþynnta kúamjólk. Fyrir börn sem eru með mjólkurofnæmi er æskilegt að nota rísmjólk, haframjólk eða speltmjólk.   Sojamjólk er mjög þungmelt og því ekki æskileg fyrir lítil börn. Nýjar rannsóknir gefa til kynna að hún inniheldur of mikið af sojaestrógenum.  Fyrir börn sem ekki þola kúamjólk er einnig hægt að gera möndlumjólk eða sesammjólk með því að blanda 2 msk. af möndlu- eða sesammauki út í 1,5 dl af volgu vatni. Það er pískað vel saman til að fá mjólk. Einnig má setja maukið beint í grautinn.  Bæði sesamfræ og möndlur innihalda kalk.  -   Gott er að setja klípu af ósöltu smjöri, teskeið af hörfræolíu eða sólblómaolíu út á grautinn til skiptis til að fá góðar fitusýrur.   Einnig er ráðlegt að gefa einhverja C´-vítamínríka fæðu með grautunum til að hjálpa líkamanum að nýta járnið úr korninu.

 

Holle-barnamatarbæklingur 

(fáanlegur á öllum sölustöðum með Holle barnamat)

 

Heill heimur
af lífrænum barnamat
 
 
Gagnlegar upplýsingar um
 holla næringu fyrir barnið þitt
 
Fæðuráðgjöf - Ungbarnamatur
 
 
 
Ást, öryggi og lífrænn-bíodynamískur barnamatur
Það besta frá lífrænni ræktun
 
Fæðing barns er stórkostlegt kraftaverk. Margt breytist. Margar fagrar stundir eru í vændum....auk mikillar ábyrgðar.   Heilmikið af stuðningi, ást og sameiginlegri reynslu og uppörvun hjálpa til við að skapa árangursríka framtíð.
 
 
Holle hefur unnið að því að framleiða hollt ungbarnafæði “frá upphafi” í meira en 70 ár. Fyrsta uppvaxtarár og þroski barnsins þíns er mikilvægasti þátturinn í lífi þess. Þess vegna er rétt næring á þessu stigi mjög mikilvæg. Brjóstamjólkin gefur barninu þínu fullkomna næringu.   Sérfræðingar mæla með að fyrstu 6 mánuðina fái barnið eingöngu brjóstamjólk.
Frá upphafi hefur Holle eingöngu boðið upp á barnamat sem unninn er úr lífrænt ræktuðu hráefni. Holle býður upp á allt sem þarf í barnamat frá fæðingu. Til að mæta þörfum barnsins og líðan þess til fullnustu eru aðaláherslur á gæði og hreinleika.
Þessi fæðuráðgjöf mun veita þér gagnlegar upplýsingar um fæði og mataræði fyrir barnið þitt frá fæðingu og þar til það fer að borða almennan mat fjölskyldunnar.
Okkar reynsla og þekking á næringarfræðilegum vísindum myndar grunn sem þú getur treyst á.
Fæðuúrvalið okkar í barnamat inniheldur ungbarnamjólk frá 1 mánaða og frá 4 mánaða auk breiðrar línu af kornmat til að nota sem velling á pela eða sem grauta. Við bjóðum upp á heildar barnamatarlínu fyrir næringu barnsins frá fæðingu fram að 3ja ára aldri.
 
 
 
Gæðastaðlar hjá Holle
 
Maturinn okkar er eingöngu framleiddur úr hráefni sem kemur frá lífrænni ræktun eða lífrænt-bíodynamískri ræktun (Demeter).
  • náttúruleg ræktun án misnotkunar á dýrum, jörð eða umhverfi.
  • gæði umfram magn
  • fjölbreytileiki í stað einhæfni
  • dýrum haldið í þeirra náttúrulega umhverfi
  • notkun á dýrahormónum og vaxtarhvötum er bönnuð
  • náttúrulegur safnhaugur í stað tilbúins áburðar
  • bannað að nota öll kemisk efni og allt skordýraeitur
  • engin kemisk viðbótarefni notuð í vinnslu afurðanna eins og t.d. rotvarnarefni.
 
Eftirfarandi á við um alla framleiðsu á Holle barnamat.:
  • trygging fyrir því að ekki séu notuð nein erfðabreytt efni.
  • enginn viðbættur sykur
  • ekkert viðbætt salt
  • engar hertar fitur
  • engin viðbætt litarefni*
  • engin viðbætt bragðefni*
  • engin viðbætt rotvarnarefni*
 
*samkvæmt reglugerð í Evrópu
 
 
Stöðugt gæðaeftirlit
 
Fullkomið gæðaeftirlit er til staðar frá bóndanum sem hefur lífræna gæðavottun og allt til þess að varan er tilbúinn barnamatur. Þetta gerir að hægt er að merkja vöruna með “Demeter” og/eða “lífrænt” á pakningunni á vörunni sem er vottuð fyrir Holle. Einnig er hægt að lesa opinbert vottunarnúmer á pakningunum. (= vottunarnúmer eg. DE-001 Öko – Board of control, CH – SCES 006) .   Þessi númer sanna viðvarandi nákvæmni og rekjanleika, frá afhendingu hráefnisins gegnum framleiðsluferlið og að lokum til endanlega tilbúinnar vöru.
 
Hin einstöku Demeter gæði
 
Alltaf þegar það er mögulegt notum við Demeter hráefni í barnamatinn okkar.
Aðeins vörur sem standast hinar ströngu kröfur í lífrænt-bíodynamískri ræktun geta fengið að bera “demeter” vottunarmerkið. Auk reglugerðar um lífræna ræktun, þá eru enn frekari reglur sem demeter bóndinn þarf að fylgja. Demeter bóndinn lítur á búgaðinn sem lifandi heild náttúrulegra ferla. Fæða fyrir dýrin þarf að vera eingöngu frá eigin framleiðslu. Úrgangi er blandað saman við safnhaug og í hann settar sérstakar jurtir eins og lækningajurtir. Jarðvegurinn er nærður á þennan hátt. Vöxtur hverrar tegundar eftir sáningu fylgir lífrænnni hrynjandi jarðarinnar. Þess vegna verða þessar afurðir sérstaklega kraftmiklar.
 
 
Holle barnamatur - Vörulínan
                                                                                   
Mikilvæg skilaboð: Brjóstagjöf er það besta fyrir barnið. Við mælum með því að þú kynnir þér hvað brjóstagjöf er mikilvæg með því að ræða við sérfræðinga (lækna, næringarráðgjafa og ungbarnaeftirlit).
 
Holle lífræn Ungbarna þurrmjólk formúla 1 og 2
 
Náttúrulega það besta:   Brjóstamjólk
 
Brjóstamjólk er það besta fyrir ungabarnið því hún inniheldur öll næringarefni og vítamín sem barnið þarf á að halda.. Þessi efni eru nauðsynleg fyrir vöxt og þroska barnsins. Efnin í brjóstamjólkinni eru sérlega mikilvæg fyrir ónæmiskerfið og byggja það upp. Auk þess veitir hið nána samband milli móður og barns öryggistilfinningu og jafnvægi fyrir barnið. Þess vegna mælir Holle með brjóstagjöf.
 
Hægt er að nálgast upplýsingar um brjóstagjöf á næstu heilsugæslustöð. Ef barnið þitt þarf á viðbótarnæringu að halda eða ef ekki er hægt að gefa barninu brjóstamjólk, þá er ráðlegt að leita til læknis.
 
Holle Lífræn Ungbarna þurrmjólk, formúla 1 og 2
Ef móðirin getur ekki fullnægt þörf barnsins með móðurmjólkinni, eða hefur ekki nægilega mikla mjólk, þá er Ungbarnaformúla 1 notuð frá fæðingu til að gefa barninu næringu í stað móðurmjólkurinnar. Hún inniheldur öll þau næringarefni sem barnið þarfnast fyrstu 6 mánuði ævinnar. Þessi mjólk er auðmeltanleg, glútenlaus, án sterkju, ekki með neinum viðbættum sykri og er sérstaklega samsett með það í huga að ná fram sama próteinhlutfalli og er í móðurmjólkinni.
 
Meðan á brjóstagjöf stendur er Holle Ungbarna þurrmjólk, formíla 1 góð sem viðbót við brjóstamjólkina og hentar með blönduðu fæði til loka fyrsta ársins.
Ef ekki er hægt að seðja hungur barnsins með Holle Ungbarnaformúlu 1, er hægt að gefa því Ungbarnaformúlu 2 frá 6 mánaða aldri. Hún gefur meiri fyllingu og uppfyllir næringarþörf barnsins. Holle Ungbarnaformúla 2 er einnig auðmeltanleg, glútenlaus og í henni er enginn viðbættur sykur.
 
Holle Ungbarnaformúla inniheldur efni sem eru 99% frá lífrænni ræktun. Lífræna nýmjólkin sem er notuð í formúluna kemur frá kúm sem fá að vera úti í náttúrunni þar sem eingöngu er lífræn ræktun. Þær eru því fóðraðar á lífrænu fóðri. Þetta er ástæðan fyrir því að  gæði mjólkurinnar eru svo mikil og við notum hana í barnamatinn okkar. Minna en 0,5% eru innihaldsefni sem eru viðbætt vítamín og steinefni. Þessum efnum er bætt við formúluna samkvæmt reglugerðum frá Evrópu og við tryggjum að þau eru ekki úr erfðabreyttum efnum.
 
Það er auðvelt og fljótlegt að útbúa mjólk úr Ungbarnaformúlunni. Mjólkurduftinu er blandað saman við soðið vatn og hrist vel. Eftir að það hefur verið látið kólna er það tilbúið til neyslu. Lesið vel leiðbeiningarnar á pakkanum og farið eftir þeim.
·          bragðgóð og auðmeltanleg
·          enginn viðbættur sykur
·          glútenlaus
·          engin erfðabreytt efni (no GMO)
 
 
Hin Einstöku Gæði á Holle Lífrænu Korngrautunum
 
*Heilkornagrautar
Holle lífrænu grautarnir eru allir framleiddir úr heilu korni. Þetta þýðir að ekki er aðeins notaður innsti kjarni kornsins heldur allt kornið og þar á meðal hið mikilvæga ysta hýði. Þess vegna eru náttúruleg næringarefni kornsins eins og prótein, kolvetni, fita, steinefni og vítamín öll til staðar.
Einnig er sérstaklega mikilvægt að hafa hýðið með vegna góðra áhrifa á meltinguna.
 
*Auðmeltanlegir - auðnýtanlegir
Holle grautarnir eru framleiddir úr heila korninu og útkoman er léttir, hollir og auðmeltanlegir grautar sem henta vel í barnamat. Með alveg sérstöku framleiðsluferli hefur okkur tekist að leysa úr læðingi allt hið besta úr lífræna /biodynamiska korninu fyrir barnið. Þetta er gert með því að hita kornið með gufu og útkoman verður næring sem hentar vel fyrir þroska og vöxt barnsins. Að auki fáum við með þessu framleiðsluferli flögur sem leysast auðveldlega upp. Þetta tryggir að barnið þitt á auðvelt með að melta og taka upp orkuna og kraftinn sem býr í hinum lífrænu grautum. 
 
*Einstaklingsbundinn matur – samkvæmt bragðsmekk barnsins
Mjög mikilvægt er að geta lagað mat samkvæmt mismunandi þörfum og smekk barnsins. Sérstök gæði lífrænu grautanna er undirstaðan í  vellingnum eða grautnum sem barnið fær. Gæðin á því sem við setjum út í grautinn eins og ávextir, mjólk eða grænmeti verða foreldrarnir að fá að ákveða sjálfir. Þess vegna eru það foreldrarnir (og ekki iðnaðurinn) sem ákveður hvað barnið borðar og það gefur þeim svigúm til að forðast það sem barnið má ekki fá eða vill ekki og bæta við því sem hentar barninu.
 
Kornmáltíðir með Holle Ungbarna þurrmjólkur formúlu
Hægt er að útbúa Holle grautana eingöngu með vatni og bæta síðan við þeirri mjólk sem hentar barninu. En ef nota á mjólk til að útbúa grautana er hægt að nota Holle Ungbarnaformúlu 1 eða 2 í staðinn fyrir ferska mjólk. Fyrst er vatnið sem búið er að sjóða látið kólna í 50°C og því næst er Ungbarnaformúlu 1 eða 2 blandað út í það. Þessu er síðan bætt út í Holle lífræna korngrautinn til að fá mjúka blöndu.   Tilbúið til neyslu!
Nákvæmar upplýsingar eru á Holle grautarpakkanum.
 
 
 
Úrvalið af Korngrautum
Úrvalið af korngrautum byggist að mestu á einstökum korntegundum þannig að ef barninu þínu líkar ekki við eina korntegund þá er hægt að dinna aðra. Holle býður upp á tvær tegundir af glútenlausum korngrautum. Lífrænan Rís-Graut og Lífrænan Hirsi-Graut. Aðrir hveitilausir grautar eru: Lífrænn Spelt-Grautur, Lífrænn Hafra-Grautur, Lífrænn 3-Kornagrautur og Lífrænn Barnamúslí-Grautur.   Lífræni Semulina-Grauturinn inniheldur hveiti. Við mælum með að byrjað sé á hreinum grautum úr einni korntegund áður en byrjað er á Blandaða-grautnum og síðar á Barnamúslí-grautnum. Þetta er til að við eigum auðveldara með að finna út ef barnið þolir ekki ákveðna korntegund og getum þá  útilokað hana úr mat barnsins út fyrsta árið.
 
Leiðbeiningar við kornofnæmi
Ef um glútenofnæmi eða óþol er að ræða þá þarf að nota glútenlausa grauta, Holle rís- og hirsi-graut.     Ef um hveitiofnæmi er að ræða þá mælum við með að nota hveitilausu grautana Holle rís-, hirsi-, spelt-, hafra- og 3-korna-graut.
Athugið gaumgæfilega innihaldslista, sérstaklega í matvælum sem innihalda blöndur af korni og ávöxtum.
 
Holle Lífræn fyrsta og önnur máltíð
Næringarríkur og heilsusamlegur barnamatur í krukkum.
  • gerður úr fersku hráefni sem hefur verið lífrænt eða lífrænt-bíodynamískt ræktað, náttúruleg vítamín, steinefni og prótein sem varðveitast í tilbúinni vöru.
  • einangruðum efnum er ekki bætt við
  • engu salti er bætt við
  • engum sykri er bætt við
  • engin þykkingarefni eru notuð.
 
Mikið úrval af ávöxtum og grænmeti frá 4 mánaða og frá 7 mánaða
Vörur merktar “A” innihalda mjög lítið af ofnæmisvaldandi efnum. Fyrsta fasta fæðan frá 4 mánaða er mjög fínmaukuð og þess vegna mjög auðmeltanleg. Fæða frá 7 mánaða er grófari og örvar þroska meltingarfæranna.
 
 
Áhugaverðar upplýsingar um Barnamat fyrsta árið
 
Næringarplan
Eftir því sem barnið vex og dafnar þá eykst þörf þess fyrir næringarefni. Hin einstaka móðurmjólk eða Ungbarnaformúla 1 nægja ef til vill ekki til að metta aukið hungur barnsins.   Viðbótarnæring fyrir barnið byrjar frá 4-6 mánaða aldri og heldur jafnt og þétt áfram í það að verða eins og næring fjölskyldunnar á öðru aldursári. En vegna þess að börn þroskast á einstaklingsbundinn hátt og laðast meira að sumum matartegundum, þá getur næringarplanið verið mismunandi eftir einstaklingum. Það er alveg eðlilegt. Einstaklingsbundin hegðun barnsins hefur áhif á örkuþörf þess og þar með stærð máltíða. Mjög líflegt barn þarf að borða meira og oftar en mjög rólegt barn. Næringarplan Holle tekur mið af leiðbeiningum frá viðurkenndri Næringarrannsóknarstofu fyrir börn sem er í Dortmund í Þýskalandi og ætti að vera leiðbeinanadi fyrir næringu barnsins þíns.
 
Brjóstagjöf / Pelagjöf
Það er ráðlegt að halda áfram brjóstagjöf eftir 6 mánaða aldur. Ef ekki er hægt að gefa barninu brjóst fullkomlega eða að hluta er hægt að bæta það upp með annað hvort
  • Holle Ungbarnaformúlu eða
  • með því að gefa Holle korn-grauta ásamt ferskri mjólk eða Holle þurrmjólkur formúlu
 
Ef þú vilt ekki nota nýmjólk í grautinn eða ef þú ert að hætta með barnið á brjóstamjólk þá mælum við með Holle Lífrænu Ungbarnaformúlu 1. Fyrir börn sem þola ekki mjólk eða eru í áhættuhópi varðandi ofnæmi og þurfa sérstaka næringu, passar ekki að gefa Holle Ungbarnaformúluna.
 
Hafið samband við lækninn ykkar ef um ofnæmi er að ræða.
Börn sem hafa verið eingöngu á brjóstamjólk til 6 mánaða aldurs ættu að fá Holle Lífræna Ungbarnaformúlu 1 áður en farið er yfir í Holle Lífræna Ungbarnaformúlu 2.
Ungbarnaformúla 1 er sérstaklega hugsuð með rétt próteinjafnvægi og inniheldur ekki sterkju. Þess vegna er hún auðmeltanleg.
Þessa Formúlu má nota til 12 mánaða aldurs.
 
Ef barnið þitt hefur fengið Formúlu 1 frá fyrstu mánuðum fram að 6 mánaða aldri, og er ekki fullkomlega mett, þá má nota Formúlu 2 sem gefur meiri fyllingu.
 
 
Grautar-máltíðir
Samkvæmt aukinni orkuþörf hins unga líkama, ætti að koma inn föst fæða samhliða grautunum til að fullnægja þörf barnsins. Þegar barnið þitt er tilbúið er best að byrja á grænmetis- og ávaxtamauki. 
 
Fyrsta fasta máltíðin frá 4 mánaða aldri
Fyrsta fasta fæðan í lífi barnsins þíns ætti að vera grænmeti. Gulrætur eru sætar og mildar og líklega besta grænmetið að byrja á. Byrjið á því að gefa nokkrar teskeiðar og leyfið barninu að borða eins mikið og það vill. 
Við mælum með því að bæta við 2 tsk. af sólblómaolíu út í 1 krukku 190 g. Notið litla plastskeið til að auðvelda barninu að venjast á að matast.
 
Næsta fasta fæðan
Það er mikilvægt að kynna nýja fæðutegund aðeins eina í einu til að geta fylgst með hvernig barnið bregst við. Ef barnið þitt þolir gulræturnar getur þú haldið áfram með gulrætur og kartöflur.
 
Mjólkurgrautur frá 4 mánaða
Mjólkurgrauturinn er gerður úr Holle korngraut og ferskri mjólk eða Holle Formúlu 2. Þegar fersk mjólk er notuð þá mælum við með einni teskeið af ávaxta- eða grænmetissafa til að gefa auka vítamín. Nákvæm uppskrift er á Holle Korngrautnum á pakkanum.
 
Mjólkurlaus ávaxtagrautur frá 5/6 mánaða
Næsti grautur sem ætti að bjóða barninu er mjólkurlaus ávaxtagrautur. Þessi máltíð kemur í staðinn fyrir brjóstagjöfina eða pelann um eftirmiðdaginn. Við mælum með því að þessi grautur sé gerður úr eplum, perum, bönunum eða ferskjum. Ekki ætti að nota suðræna ávexti eða ávaxtablöndu fyrr en barnið hefur vanist ávöxtunum einum og sér.
 
 
Junior máltíðir fyrir barnið frá 7 mánaða
Frá 7 mánaða aldri er gott að byrja að gefa barninu minna maukaðan  mat.  Junior grænmetisgrautur með kornmeti er grófari og Junior ávaxtagrautur getur innihaldið ávaxtabita.   Breytingin á grófleika hvetur barnið til að fara að tyggja. Holle Junior barnamaturinn uppfyllir þarfir barnsins þangað til það fer að borða almennan mat eftir 12 mánaða aldur.
 
 
Að útbúa Holle Ungbarna þurrmjólkur-formúlu 1 og 2
Pelamáltíð
Einungis soðið vatn þarf til að útbúa pelamáltíð með Lífrænni Ungbarnaformúlu 1 eða Lífrænni Ungbarnaformúlu 2.   Engu öðru þarf að bæta við, því mjólkurduftið inniheldur öll nauðsynleg næringarefni.
 
Að útbúa Holle grautarmáltíð
Mjólkurgæði / útþynning
Þegar útbúa á grautarmáltíð, mælum við með ferskri lífrænni mjólk. Vegna þess að kúamjólk inniheldur meira prótein og steinefni  en brjóstamjólkin, þarf að þynna hana til helminga með vatni fyrstu 6 mánuði barnsins. Þetta er vegna þess að nýru barnsins eru ekki fullþroskuð og álagið á þau yrði annars of mikið.
 
Að bæta við jurtaolíum
Jurtaolíur innihalda lífsnauðsynlegar fitusýrur, sérstaklega línolsýru og einnig fituleysanleg vítamín. Brjóstamjólkin inniheldur næga línolsýru, en í kúamjólk er lítið af henni. Vegna þess að þynna þarf kúamjólkina fyrstu 6 mánuðina er nauðsynlegt að nota sólblómaolíu. Auk þess styrkist ónæmiskerfið og næringargildið eykst. Við mælum ekki með þystilolíu eða ólívuolíu, vegna samsetningar þeirra.
 
Að bæta við mjólkursykri
Allir Holle korngrautarnir eru án sykurs. Hreinsaðan sykur ætti ekki að nota í ungbarnafæði. Hins vegar mælum við með því að nota mjólkursykur í grautana og annan mat fyrstu 7 mánuðina.   Ungabörn hafa engan orkuforða og eru lengur en fullorðnir að breyta orkunni úr korninu í sykur.
Mjólkursykur er auðmeltanlegur og hraðvirkur orkugjafi sem tryggir stöðuga og fullnægjandi orku fyrir ungabarnið.   Mjólkursykurinn er mikilvægt kolvetni einnig í mjóðurmjólk, og hefur marga kosti fram yfir hreinsaðan sykur vegna þess að hann hefur sama orkugildi en aðeins 40% af sætunni. Þess vegna hentar mjólkursykur svo vel í ungbarnafæði.   Að auki er hann góður fyrir þróun á heilbrigðri þarmaflóru. Frá 7 mánaða er ekki lengur þörf á að nota mjólkursykur. Annar góður sykur sem er gott að nota í grautana er lífrænt rófusíróp. Það inniheldur auk sæturnnar mikið af góðum næringarefnum.
 
Að bæta við safa
Gott er að setja grænmetis- og ávaxtasafa út í grautana. Það eykur næringargildi þeirra á náttúrulegan hátt. Við mælum sérstaklega með ávaxtasöfum sem innihalda C-vítamín og gulrótarsafa sem inniheldur A-vítamín.
 
Nýjustu fréttir
Verslunin Yggdrasill flytur af Skólavörðustígnum í Mars 2010Við kveðjum...

Samstarfsaðilar

 

Móðir Jörð