Lífrænt ræktað inniheldur meira af næringarefnum og andoxunarefnum.

Samkvæmt nýjum áreiðan-legum rannsóknum þá inniheldur lífrænt ræktað fæði meira af næringarefnum og andoxunarefnum . Sjá nánar .

 

 

 

 

 Andlitsvörur

 

 

Dagleg Hreinsun - undirstaða í allri húðumhirðu

Hreinsikrem – Cleansing cream 50 ml
Fyrir andlit - gefur góða en milda djúphreinsun fyrir allar húðgerðir og viðheldur réttu sýrustigi húðarinnar. Gott að nota bæði kvölds og morgna.Skilur húðina eftir mjúka og hreina. Kornótt krem sem á alls ekki að nudda inn í húðina, heldur aðeins að dempa á húðina með léttum hreifingum, þannig að óhreinindin dragist upp úr húðinni.   Inniheldur lækningajurtir eins og morgunfrú, kamillu, jóhannesarjurt og smára, sem stuðla að heilbrigði húðarinnar.
 
Hreinsimjólk – Cleansing milk 145 ml
Fyrst og fremst hugsuð til að hreinsa andlitsfarða á kvöldin. Gefur flauelsmjúka yfirborðshreinsun fyrir allar húðgerðir án þess að raska náttúrulegu sýrustigi húðarinnar. Sérstaklega góð fyrir þurra og viðkvæma húð. Inniheldur mikilvægar olíur og jurtir sem vernda og styrkja húðina, sem verður mjúk og frískleg. Sérstaklega til að hreinsa af farða á kvöldin. Gott að nota einnig hreinsikrem á eftir til að fá dýpri hreinsun fyrir húðina.
 
Andlitsvatn – Facial toner 100 ml    
Örvar starfsemi húðarinnar og setur í gang rakaferli í húðvefnum, með styrkjandi og endurnærandi áhrifum sínum. Notað eftir hreinsun húðarinnar til að fríska hana og verja gegn óhreinindum. Sérstaklega gott fyrir nóttina eftir hreinsun með hreinsikreminu.    Gott sem after-shave fyrir herra.
 
Andlitsvatn special  - Clarifying toner 100 ml
fyrir óhreina húð – hreinsandi og græðandi
Inniheldur sólhatt og aðrar jurtir sem eru sótthreinsandi og koma jafnvægi á húð sem er í ójafnvægi.  Styrkir æðarnar og er blóðheinsandi og græðandi. Dregur úr bólgum í húðinni. Inniheldur engin þurrkandi efni. Dagleg notkun minnkar bólur og kemur í veg fyrir myndun fílapensla. Notað  eftir hreinsun húðarinnar kvölds og morgna og úðað beint á andlitið og látið  síast inn í húðina.   Gott after-shave fyrir herra sem fá bólur.
 
Dagleg umhirða húðarinnar
 
Andlitsmjólk – fljótandi dagkrem – Moisturizing day cream 30 ml og 100 ml
Þunnt rakakrem fyrir allar húðgerðir nema rauða sprungna húð. Kemur jafnvægi á rakastig húðarinnar, upplífgar og frískar föla, þreytta og þurra húð. Fer auðveldlega inn í húðina án þess að skilja eftir fitu. Gefur húðinni aukna útgeislun. Ath! hentar ekki fyrir bólótta og viðkvæma húð.
 
Kveðukrem – Quince day cream 30 ml 
Andlitsrakakrem sem mýkir og verndar húðina allan daginn gegna ytri mengun og frískar hana. Fyrir allar húðgerðir. Inniheldur virkar lækningajurtir og efni úr kveðuávexti sem er sérstaklega rakabindandi.   Gott “city-krem” .
 
Rósakrem – Rose day cream 30 ml
Veitir sérstaka vörn fyrir venjulega, þurra og viðkvæma húð. Efni úr rósum veitir húðinni jafnvægi og styrkir viðkvæma húð og húð sem hefur tilhneigingu til að fá æðaslit. Mikilvæg rósaolía, rósablóm og rósaber styrkja mótsöðukrafta húðarinnar. Hún verður slétt og mjúk. Rósakremið dregur úr háræðasliti, róar og græðir viðkvæma húð.  Mjög gott krem fyrir alla aldurshópa. Gott ungbarnakrem og einnig gott fyrir eldri húð.   Sérstaklega gott krem á andlitið í kulda.   Besta kremið fyrir húð með æðaslit.
 
Andlitsolía – Normalizing day oil 30 ml   
Kemur jafnvægi á feita og óhreina húð og jafnar rakastig hennar. Sérstaklega góð daglega fyrir feita, óhreina og grófa húð. Dregur úr fituframleiðslu húðarinnar og eykur  teygjanleika hennar. Ásamt rósakreminu veitir hún sérstaka vörn gegn sterku sólarljósi og kulda. Notuð með andlitsmjólkinni vinnur hún gegn fílapenslum og kemur jafnvægi á blandaða, feita og þurra húð. Andlitsolían inniheldur mjög græðandi gulrótarolíu. Andlitsolíuna má blanda saman við hvaða krem sem er og gefur þá húðinni extra vörn.
 
Litað dagkrem – Toned day cream   30 ml 
Þunnt andlitskrem fyrir venjulega, þurra og viðkvæma húð. Gefur fallegan lit. Er sérstaklega kælandi fyrir rauða og viðkvæma húð og húð með rósroða. Er einnig mjög nærandi krem. Hægt að nota eitt og sér eða blandað saman við önnur krem.
 
Litað fljótandi dagkrem – Translucent broze conentrate 30 ml
Fljótandi krem með lit fyrir allar húðgerðir. Notað yfir andlitskrem. Jafnar misfellur og gerir rauðar háræðar og ör í húðinni minna áberandi. Gefur húðinni fallegan gljáa og heilbrigt útlit. Kemur jafnvægi á raka og fitu í húðinni.  
 

Fyrir augun

 
Augnkrem – Eye contur day balm 10 g  
Minnkar hrukkur í kringum augun. Mýkir og verndar gegn ytri áhrifum. Notað að morgni dags fyrir farða. Styrkir augnsvæðið. Þarf mjög lítið.
Einnig gott til að fjarlægja maskara. Örlitlu magni nuddað milli fingranna til að hita það áður en borið er á húðina.
 
Augnkrem í túbu – Daily vitalizing day cream 12,5 m
Sérstaklega framleitt til að viðhalda raka, laga viðkvæma húð kringum augum og viðhalda jafnvægi. Frískandi krem. 
 
Augntraust – Eye solace 10 x 5 ampúllur 
Gott fyrir rauð, þrútin og þreytt augu. Jurtirnar augnfró (euphrasia) og fennel gefa þreyttum augum nýtt líf. Má nota bæði kvölds og morgna. Áhrifin aukast ef einnig er notað Augnkrem og það smurt þunnt á augnlokin og í kringum augun á eftir.
 
 
Fyrir varirnar
 
Varasalvi Lip care stick 4,9 g
Fyrir allar húðgerðir. Verndar mýkir og gefur raka. Mildar jurtir örva húðina og gefa heilbrigðar varir. 
 
Varakrem – Lip Balm 4,5 ml
verndar og kemur í veg fyrir að varir springi. Veitir góða vörn gegn kulda, sterkri sól og saltvatni. Kemur í veg fyrir ótímabæra hrukkumyndun í kringum munninn. Ef varirnar hafa orðið fyrir ertingu eða skaðast af verðri og vindum, er sérstaklega mælt með að notar Húðkúr N.
 
 
 

Sérstök meðferð fyrir andlitshúðina 

næringar-maskar

Þessi lína er fyrir húð sem þarf sérstaka meðferð vegna vandamála af ýmsum toga. Er fyrir allar húðgerðir en er sérstaklega fyrir húð sem er of feit, of þurr, of viðkvæm eða þarfnast einfaldlega endurnýjunar og endurnæringar.   Maskarnir eru notaðir einu sinni í viku, en það má einnig nota þá sem krem og eru þá bornir í þunnu lagi undir annað dagkrem.

Rósamaski – Firming mask 30 ml
Sérstaklega frískandi maski sem strekkir á húðinni, frískar hana og stinnir. Vinnur gegn hrukkumyndun og ofþornun.  Sérlega góður fyrir húð eldri en 30 ára.
Hreinsið húðina og berið þykkt á andlit og háls , einnig kringum augun. Látið virka í 20 mínútur. Fjarlægt með mjúkum klút og volgu vatni. Einnig hægt að nota sem sem krem, þá borið þunnt lag á húðin undir annað dagkrem.
 
Vitalmaski – Rejuvenating mask 30 ml
Sérstaklega endurnærandi maski sem hjálpar húðinni að endurnýjast. Góður fyrir örótta og skemmda húð (illa farna) húð. Einnig fyrir feita óhreina og viðkvæma húð og húð sem er rauð og með háræðaslit. Verkar róandi og frískandi. Húðin verður sléttari.  Sérstaklega góður maski fyrir yngri húð.   Notað eins og Rósamaski, einnig hægt að nota þunnt undir dagkrem.
 
RakamaskiMoisturizing mask 30 ml
Þessi maski er  sérstaklega rakabindandi og viðheldur eðlilegum sveigjanleika húðarinnar. Kremaður lúxusmaski f. þurra húð. Kælandi eftir sólböð. Notist eins og vitalmaski  og rósamaski.
 
Andlitsgufubað – Facial steam bath 100 ml
Inniheldur hreinsandi lækningajurtir og er djúphreinsandi.   Setur af stað úthreinsun og leysir stíflur í húðinni. Eflir mótstöðukrafta húðarinnar. Sett í heitt vatn eða gufutæki. Fyrir alla húð til hreinsunar, en fyrst og fremst fyrir bólótta og óhreina húð.
 
 
Andlits-leirmaski – Cleansing clay mask 90g í krukku og 90g í béfi til áfyllingar
Djúphreinsandi maski fyrir óhreina húð. Maskinn leysir upp óhreinindi í húðinni á mildan hátt og dregur í sig.  Er einnig róandi fyrir húðina. Tvær matskeiðar af duftinu er hrært út í sama magn af vatni.   Blandan á að vera mjúk og kremkennd.  Maskinn ekki látinn þorna. Bleyttur vel og fjarlægður með volgu vatni eftir 10-15 mínútur.  Fyrir feita og óhreina húð notað einu sinni til tvisvar í viku. Fyrir venjulega húð einu sinni í mánuði.
 
Húðdkúr N – Rythmic night conditioner 10 ampúllur og 50 ampúllur
Fyrir nóttina – fyrir allar húðgerðir.
Þessi húðkúr er endurnýjandi efni í fljótandi formi til að nota á nóttinni. Þegar húðin er úr jafnvægi (of feit eða viðkvæm, eða undir álagi) þá er gott að nota húðkúrinn í staðinn fyrir Andlitsvatn. Þessi kúr gefur líf, kraft og næringu. Notist í 28 daga, 2 ampúllur í einu í 22 daga og síðan 1 á dag síðustu 6 dagana. Gott að nota þegar húðin er vanin af því að nota næturkrem. Fyrir venjulega húð nokkrum sinnum á ári til að styrkja húðina.
 

Húðkúr S – Rythmic conditioner, Sensitive 10 ampúllur og 50 ampúllur Fyrir viðkvæma húð og húð með rósroða. Sérstaklega hugsað fyrir háræðaslit og rauða húð. Styrkir háræðarnar í húðinni og kemur í veg fyrir myndun rauðra bletta í húðinni og háræðaslit. Best að nota í kúrum í 1-3 mánuði í einu. Notið aldrei kalt eða heitt vatn á viðkvæma húð, heldur mikið af volgu vatni.

Nýjustu fréttir
Verslunin Yggdrasill flytur af Skólavörðustígnum í Mars 2010Við kveðjum...

Samstarfsaðilar

 

Móðir Jörð