RAPUNZEL - náttúrufæði
Þar sem lífræn ræktun og heiðarleg viðskipti haldast í hendur og var stefnan frá upphafi að vera eingöngu með vottaðar lífrænt ræktaðar vörur. Þegar framleiðsla og eftirspurn jókst þurfti að flytja inn vörur frá þróunarlöndunum. Þá var ákveðið að lífræn ræktun og heiðarleg viðskipti þyrftu að haldast í hendur.
Í dag versla RAPUNZEL við 8 aðila í þróunarlöndunum sem útvega þeim hráefni í 50% framleiðslunnar.
samskiptum, gagnkvæmu trausti og miðlun upplýsinga. Allt þetta tryggir gæði framleiðslunnar sem
að sjálfsögðu er vottuð af viðurkenndum óháðum eftirlitsaðilum.
Helstu þættir lífrænnar ræktunar og lífrænna afurða.
Virðing fyrir jörðinni:
* enginn tilbúinn kemiskur áburður
* engin eiturefni
Úrvinnsla afurðanna:
mild vinnsluaðferð til að varðveita næringarefni
engin rotvarnarefni
engin kemisk litarefni
engin kemisk bragðefni
Gæðin skila sér í næringargildi og góðu bragði
Helstu þættir Hand-in-Hand viðskipta.
RAPUNZEL gerir langtímasamninga við framleiðendur og sér til þess að þeir fái
viðunandi laun fyrir sitt framlag, og veitir þeim aðstoð við uppbyggingu þar sem
þess er þörf.
Framleiðendur sjá einnig til þess að vinnumenn fái viðunandi laun og vinnuaðstöðu.
Þeir sjá einnig til þess að börn séu ekki misnotuð í vinnu, heldur fái skólagöngu
þar sem þess er kostur.
Tyrklandsverkefnið
Fjölbreitt vöruúrval
Rapunzel býður upp á mjög breitt vöruúrval: Pasta úr heilhveiti og speltmjöli, heilt korn , músli, kornflögur,
hnetusmjör, þurrkaða ávexti, kaldpressaðar olíur, kaffi og súkkulaði, svo fátt eitt sé nefnt.