Lífrænt ræktað inniheldur meira af næringarefnum og andoxunarefnum.

Samkvæmt nýjum áreiðan-legum rannsóknum þá inniheldur lífrænt ræktað fæði meira af næringarefnum og andoxunarefnum . Sjá nánar .

 

 

Hirsilasagna Rúnars
Ljúffengt grænmetislasagna með hrásalati

 

1.5  dl hirsi Rapunzel (soðið í 2.5 dl af vatni)

3 vænar gulrætur (ca. 400 g)

1 gul paprika

1 chilipipar

3-4 hvítlauksrif

4 mtsk. Ólívuolía Krít-Rapunzel

3 tsk. Jurtakraftur Rapunzel

4 dl vatn

1 dl rjómi eða sojarjómi

200 g tómatpure DeRit

1 tsk. Picatakrydd

3 tsk. Þurrkuð steinselja Helios

1 tsk. Þurrkað basil Helios

2 tsk. Oregano Helios

Lasagnaplötur Semola Rapunzel

 

Hirsið soðið við lægsta hita undir loki í 10-15 mín. Saltað með ½ tsk. af salti. Lokið þá tekið af og látið rjúka af hirsinu svo það verði laust í sér. Gulrætur rifnar gróft, laukur, paprika, chilipipar og hvítlaukur skorið smátt. Steikt í ólívuolíunni við vægan hita í 5-7 mín. Eftir það er 4-5 dl af vatni bætt út í ásamt jurtakraftinum og látið sjóða undir loki við vægan hita í 10 mín.Þá er rjómanum og tómatmaukinu bætt út í og að síðustu kryddjurtunum og soðna hirsinu. Þá er öllu raðað í smurt eldfast mót. Fyrst eitt lag af lasagnaplöum. (ath. ekki þarf að forsjóða lasagnaplöturnar frá Rapunzel, en ágætt að leggja þær í smástund í kalt vatn áður). Síðan fylling og lasagnaplötur til skiptis, fylling efst. Þetta þarf að baka í ofni við 200°C í ca. 45 mín. Þá er lasagnað tekið úr ofninum og ostur settur yfir og þetta bakað í 10 mín. í viðbót.

 

Hrásalat.

1 meðalstórt íssallat

3-4 tómatar skornir í báta

½ agúrka skorin í bita

1 rauður laukur strimlaður smátt

ca ½ fetaostur

dressing á salatið: 3 msk. Hvítt Balsamik edik Rapunzel.

Nýjustu fréttir
Verslunin Yggdrasill flytur af Skólavörðustígnum í Mars 2010Við kveðjum...

Samstarfsaðilar

 

Móðir Jörð