Hýðishrísgrjóna- og hafragrautur Þessi grautur er sérlega næringarríkur og mettandi og inniheldur mikið af trefjum og er því er sérstaklega góður fyrir meltinguna. Gott að nota sem morgungraut.
1 dl stutt Rapunzel hýðishrísgrjón 1 dl heilir hafrar 4 dl vatn sjávarsalt lífræn nýmjólk, sojamjólk eða haframjólk Rapunzel apríkósur, fíkjur og hörfræ eftir smekk
Setjið 1 dl hrísgrjón og 1 dl heila hafra í pott með 4 dl af vatni. Látið suðuna koma upp og lækkið síðan hitann. Látið sjóða í ca. 45 mín. Þurrkuðu ávextirnir eru saxaðir smátt og settir út í grautinn ásamt hörfræjum og þetta látið sjóða með síðustu 10 mínúturnar. Gott að setja smá mjólk útí síðustu 5-7 mínúturnar. Smá salt sett útí að lokum. Þennan graut má einnig gera þannig að kornið er soðið kvöldið áður og þá þarf aðeins að sjóða það í 10-15 mínútur. Þá er slökkt á hellunni en potturinn látinn vera áfram á henni og standa yfir nótt. Þá er kornið tilbúið morguninn eftir. Heilt soðið korn geymist í kæli í þéttu íláti í nokkra daga. Einnig er gott að setja út í grautinn möndlur,sesamfræ og sólblómafræ. Í þeim er mikið af góðum fitusýrum og næringarefnum. Í sesamfræjum er sérstaklega mikið af kalki. |







