Speltvöfflur
1 egg ¾ dl Rapunzel hrásykur cristallino 3 dl sigtað Aurion speltmjöl 3 dl gróft Aurion speltmjöl 2 dl Rapunzel hafraflögur fínar 100 g smjör brætt ½ dl lífræn mjólk ½ bréf Rapunzel vanillusykur 1 tsk. Vínsteinslyftiduft
Egg og sykur þeytt vel saman og bræddu smjörinu bætt saman við, síðan mjólkinni go að síðustu þurrefnunum. Gott er að láa deigið standa smávegis áður en vöfflurnar eru bakaðar. Borið fram með sykurlausri sultu frá Ekoland og þeyttum rjóma (eða sojarjóma í spraybrúsa frá TofuTown). |







