Lífrænt ræktað inniheldur meira af næringarefnum og andoxunarefnum.

Samkvæmt nýjum áreiðan-legum rannsóknum þá inniheldur lífrænt ræktað fæði meira af næringarefnum og andoxunarefnum . Sjá nánar .

 

 

Glúteinlaus jólakaka
(undirbúningur: ca 2-3 mánuði fyrir jól)

 

100 g Rapunzel appelsínubörkur með maíssírópi

100 g Rapunzel sítrónubörkur með maíssírópi

150 g Rapunzel apríkósur (óbrennisteinshreinsaðar)

250 g Rapunzel brasilíuhnetur

250 g Rapunzel steinlausar döðlur

100 g Rapunzel rúsínur

150 g Horizon pecanhnetur eða valhnetur

1 tsk  vínsteinslyftiduft (álfrítt)

100 g Rapunzel möndlur

3 stór hamingjuegg

2 msk þunnt DeRit villiblómahunang

½ tsk Rapunzel vanilluduft

2 msk romm

½ dl Ekoland appelsínusafi

 

Skerið brasilíuhneturnar í bita. Setjið í skál með þurrkuðu ávöxtunum og hnetunum. Hrærið lyftidufti og möndlum saman við og síðast appelsínusafanum. Þeytið eggin og bætið í þau hunanginu og vanilluduftinu og þeytið áfram. Hellið blöndunni varlega yfir hnetu og ávaxtablönduna. Hellið deigblöndunni í 2 smurð jólakökuform. Bakið við 150° í 1 klst. Takið úr ofninum og kælið. Hellið romminu yfir kökuna. Pakkið í álpappír og geymið í allt að þrjá mánuði.  Gott er að dreypa rommi yfir kökuna öðru hverju.

Nýjustu fréttir
Verslunin Yggdrasill flytur af Skólavörðustígnum í Mars 2010Við kveðjum...

Samstarfsaðilar

 

Móðir Jörð