HAND IN HAND sameinar hugmyndina um vottaða lífræna ræktun og heiðarleg viðskipti. Langtíma samningar við vörubirgja gefa viðskiptaaðilum okkar nýja framtíðarmöguleika og tryggja við-skiptavinum okkar mikil gæði varðandi lífræna ræktun.
Árið 1987 hóf RAPUNZEL samstarf við einn viðskiptaaðila – samvinnufélagið El Ceibo. Út frá því hófst samstarf við 14 HAND IN HAND-viðskiptaaðila. Þeir framleiða 10 mikilvæg hráefni, sem eru notuð í 100 vörur í vöruúrvali RAPUNZEL. Margra ára samstarf sem einkennist af trausti, stöðugum persónulgum samskiptum og varanlegu gæðaeftirliti, tryggir mikil gæði á tilbúinni vöru. Eftirlit fer fram af óháðum eftirlitsaðilum.
HAND IN HAND merki fyrirtækisins er að finna á öllum þeim vörum frá RAPUNZEL sem innihalda a.m.k. 50% hráefni frá HAND IN HAND-viðskiptaaðilum. Þær vörur sem hafa minna en 50% hráefni frá þeim, fá ekki þetta merki. HAND IN HAND-merkið er á 51 vöru frá RAPUNZEL.
Að auki hefur RAPUNZEL stutt fjárhagslega meira en 35 félagsleg verkefni og verkefni er lúta að lífrænni ræktun með fjárframlagi yfir 200.000 € úr HAND IN HAND-sjóðum, sem er stjórnað af Þýsku Umhverfishjálpinni.
|








