Tyrklandsverkefnið er stærsta og elsta verkefni RAPUNZEL. Árið 1976 hafði Joseph Wilhelm samband við bændur í Tyrklandi. Þá voru fáanlegir þurrkaðir ávextir og hnetur sem ekki var búið að meðhöndla með brennisteini eða gasi, en á þeim tíma var sjaldgæft að geta fengið þannig vöru. Þá hófst starfsemi sem fólst í að kenna bændunum lífræna ræktun.
Eftir 10 ára brautryðjendastarf fékkst fyrsta uppskeran sem fékk lífræna vottun. Í dag er unnið að því að ná fram fyrsta flokks gæðum, ekki bara hjá RAPUNZEL í Legau, heldur einnig hjá 450 bændum sem vinna að lífrænni ræktun og hjá 6 jarðræktarfræðingum sem starfa við Tyrklandsverkefni RAPUNZEL. Á 3500 hekturum lands eru ræktaðar 28 mismunandi afurðir samkvæmt reglugerðum lífrænnar ræktunar.
|







