Lífrænt ræktað inniheldur meira af næringarefnum og andoxunarefnum.

Samkvæmt nýjum áreiðan-legum rannsóknum þá inniheldur lífrænt ræktað fæði meira af næringarefnum og andoxunarefnum . Sjá nánar .

 

 

 

Stofnendur RAPUNZEL NATURKOST AG, Joseph Wilhelm og Jennifer Vermeulen eru brautryðjendur í framleiðslu á vörum framleiddum eingöngu úr lífrænt ræktuðum afurðum.

 

Í upphafi þurftu þau að sannfæra marga aðila um gildi þess sem þau voru að gera. RAPUNZEL NATURKOST AG, sem hefur aðsetur í Legau/Allgäu í Suður-Þýskalandi, er í dag leiðandi ræktunaraðili, framleiðandi og dreifingaraðili með lífrænt ræktaðar matvörur. Eftir rúmlega 30 ára starf hefur litla 35 fermetra lífræna matvörubúðin þeirra með viðarofnsbakaríi og lífrænni garðyrkjustöð, þróast yfir í fyrirtæki með 250 starfsmönnum.

 

Eftir fyrstu hefðbundnu heilsusamlegu matvælin sem framleidd voru, múslí og hnetumauk, urðu sífellt fleiri vörur hluti af vöruúrvalinu. Í dag má finna u.þ.b. 400 RAPUNZEL vörur í öllum sambandslöndum Þýskalands, í meira en 2.000 heilsubúðum. Tæplega helmingur af vörunum eru framleiddur eða unnar í Legau, hinn hlutinn hjá samningsbundnum framleiðendum og að mestu leyti úr RAPUNZEL hráefnum og alltaf í samræmi við meginreglur og gæðakröfur RAPUNZEL.

 

RAPUNZEL fær lífræn hráefni frá rúmlega 30 löndum um allan heim, til að nota í framleiðsluvörur sínar. RAPUNZEL vörur eru fluttar út til næstum jafnmargra landa. Við samningagerð leggur RAPUNZEL mikið upp úr gæðum matvaranna, en auk þess einnig mikla áherslu á lífsgæði bændanna, sem sjá um ræktunina. Þess vegna varð verkefnið HAND IN HAND til, en það sameinar hugmyndina um vottaða lífræna ræktun og heiðarleg viðskipti.

 

Lesa nánar...

 

Nýjustu fréttir
Verslunin Yggdrasill flytur af Skólavörðustígnum í Mars 2010Við kveðjum...

Samstarfsaðilar

 

Móðir Jörð