Lífrænt ræktað inniheldur meira af næringarefnum og andoxunarefnum.

Samkvæmt nýjum áreiðan-legum rannsóknum þá inniheldur lífrænt ræktað fæði meira af næringarefnum og andoxunarefnum . Sjá nánar .

 

 

 

Um Yggdrasil

 

Yggdrasill var stofnað árið 1986 og var tilgangurinn með stofnun félagsins að selja eingöngu lífrænt ræktaðar matvörur og aðrar vörur af bestu fáanlegu gæðum. Félagið hefur öll árin haldið þessu markmiði sínu. Þeir sem stóðu að stofnun félagsins voru hjónin Rúnar Sigurkarlsson og Hildur Guðmundsdóttir ásamt nokkrum bændum sem voru þá að stunda lífræna ræktun. Þessir aðiðlar höfðu það sameiginlegt að hafa kynnst lífrænni ræktun og lífrænum afurðum í Järna í Svíþjóð, og fannst vanta mikið upp á úrval og gæði á slíkum vörum á Íslandi. Einnig var til staðar lítill hópur fólks sem fannst mjög mikilvægt að svona fyrirtæki gæti orðið til og lagði sitt af mörkum til að hjálpa til.

 

Starfsemin fór rólega af stað enda ekki svo stór neytendahópur til að byrja með. Lítil geymsla í fjölbýlishúsi dugði fyrstu mánuðina. Í desember 1988 var svo verslunin flutt í miðbæ Reykjavíkur í húsnæði að Kárastíg 1. Þar hefur verslunin starfað í öll þessi ár þar til í mai 2005, en þá fluttum við í nýtt og stórglæsilegt húsnæði á Skólavörðustíg 16. Þann 20.mars stækkaði búðin svo við sig og flutti í munstærra og glæsilegt húsnæði að Rauðarárstíg 10, við Hlemm. Búðin hefur fengið góðar móttökur og vöruúrval hefur stóraukist. Búðin tvöfaldaði stærð sína frá fyrra húsnæði.

Auk verslunarinnar á Skólavörðustíg hefur Yggdrasill einnig starfrækt heildsölu og selt í aðrar verslanir. Heildsala og dreifing í aðrar verslanir hefur einnig aukist og fást nú vörur frá Yggdrasil í öðrum heilsuvöruverslunum og stórmörkuðum, meðal annars í Blómaval, Brauðhúsinu, Fjarðarkaup, Hagkaup Kringlunni , Hagkaup Smáralind, Hagkaup Skeifunni, Heilsuhúsbúðunum, Melabúðinni, Árnesapóteki á Selfossi og Versluninni Völu á Sólheimum í Grímsnesi.
Félagið hefur gott samstarf við bændur á Íslandi sem stunda lífræna ræktun og hefur ætíð til sölu það úrval af lífrænt ræktuðu grænmeti sem fáanlegt er hverju sinni. 
Einnig flytjum við inn vörur frá m.a. Þýskalandi, Hollandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Bretlandi.
Við leggjum áherslu á að versla helst við fyrirtæki sem eru eingöngu með lífrænt ræktaðar vörur með gæðamerkingum frá viðurkenndum vottunaraðilum.
 

Í dag er starfsemin ört vaxandi og vöruúrval er alltaf að aukast. Áhugi á lífrænt ræktuðum vörum hefur aldrei verið meiri en í dag. Ástæður fyrir því eru margar m.a. meiri meðvitund um umhverfismál og heilsu. Einnig gerir fólk kröfur á að vita nákvæmlega innihald vöru sem það neytir, m.a. vegna ofnæmis. Því miður er það staðreynd að ofnæmi og óþol hefur aukist mikið og því er mikilvægt að neytendur hafi aðgang að vörum sem það getur treyst að eru án aukaefna, litarefna og ýmissa annarra óæskilegra hjálparefna.

 

 

 

Nýjustu fréttir
Verslunin Yggdrasill flytur af Skólavörðustígnum í Mars 2010Við kveðjum...

Samstarfsaðilar

 

Móðir Jörð