Lífrænt ræktað inniheldur meira af næringarefnum og andoxunarefnum.

Samkvæmt nýjum áreiðan-legum rannsóknum þá inniheldur lífrænt ræktað fæði meira af næringarefnum og andoxunarefnum . Sjá nánar .

 

 

 

Fyrir líkamann eftir baðið

Eftir bað eða sturtu viljum við viðhalda tilfinnningu um ferskleika í marga klukkutíma. Dr.Hauschka býður upp á margar heildrænar og lífrænar vörur sem vernda húðina og gefa henni jafnvægi. Þessar vörur stuðla allar að heilbrigði húðarinnar um leið og þær vernda hana gegn utanaðkomandi álagi. Athugið að alltaf skal bera húðolíur á raka húð.

 

 

Húð- og nuddolíur
Dr.Hauschka húð- og nuddolíur byggja upp vellíðan og varðveita tengsl milli líkama, sálar og tilfinninga. Allar olíurnar innihalda kjarna-olíur og í grunninn er jarðhnetuolía. Nuddist inn í húðina eftir sturtu eða bað.

 
Birki- Arnikuolía – Fitness Body Oil 100ml
Ilmkjarna-olía úr birki endurnærir líkamann eftir líkamsæfingar á meðan arnikan gælir við húðina með vermandi kröftum sínum. Dregur úr eða jafnvel kemur í veg fyrir harðsperrur. Minnkar liðverki.
 
Þyrniplómuolía – Blackthorn Body Oil 100ml - 
slitolía !
Hentar almennt til að hita og vernda líkamann. Sérstaklega virkar hún til að koma í veg fyrir húðslit og til að styrkja húðina. Inniheldur þyrniplómublóm, birkilauf og jóhannesarjurtaurtaveig.
 
Lofnarblómaolía – Lavender Body Oil 100 ml
Lavendel jurtin fangar lóskrafta og varma sólarinnar og er því sérlega góð slakandi gegn streitu og lifnaðarháttum nútímans. Hún róar rauða, erta húð og færir þér nýja krafta. Inniheldur lavendel kjarnaolíu og ersérstaklega góð fyrir viðkvæma húð.
 
Mór Lavendelolía – Moor Lavendel Body Oil 100ml
Séstaklega hjálpleg olía þar sem hún verndar fólk sem er viðkvæmt fyrir loftmengun og snöggum veðrabreytingum. Inniheldur mó, hestakastaníu og klóelftingar veigar sem og lofnarblóma kjarnaolíu. Hestakastanían í olíunni er sérstaklega góð fyrir æðahnúta.


Sítrónuolía – Lemon Bath Oil 100 ml
Sítrónuilmurinn vekur lífskraftana. Sérlega góð á morgnana og vekur þá bæði líkama og skynfæri. Stuðlar að minnkun á appelsínuhúð. Góð á feita og slappa húð. Kjarnaolíumagn er 5%.
 
Rósaolía – Rose Body Oil 100ml
Rósin sem stendur fyrir fullkomnu jafnvægi og fegurð er undirstaðan í þessari verðmætu olíu. Hún myndar verndandi himnu yfir viðkvæma húð og veitir húðinni styrk og jafnvægi. Einstaklega góð gegn ofsaþreytu og slappleika. Sérstaklega góð fyrir ungabörn.

Rósmarínolía – Rosemary Body Oil 100ml
Mjög hitandi olía, notið því reglulega á veturna til að örva hitaferli líkamans. Rósmarínolíu ætti ekki að nota að kvöldi til því hún örvar heilastarfsemina. Inniheldur Rósmarín kjarnaolíur.
 
 
Jóhannesarjurtaolía – St John´s Wort Body Oil 100ml
Jóhannesarjurtin fær mann alltaf til að hugsa til sólarinnar með fallegu gulu blómunum sem príða jurtina – hún velur alltaf heitasta og þurrasta stað skógarins til að festa rætur og blómastrar á bjartasta tíma ársins. Notið olíuna fyrir mjög viðkvæma húð. Jóhannesarjurtin er náttúrulegt þunglyndislyf.
 
 
Fyrir hendur og fætur
 
Handáburður – Hand Cream 50ml
Inniheldur jurtir sem viðhalda rakanum í húðinni og hjálpa við endurnýjun húðfrumnanna. Fer vel inn í húðina og mýkir án þess að skilja eftir fitu á húðinni. Hefur reynst vel fyrir exem og psoriasis húð.
 
Naglaolía – Neem Nail Oil 30ml
Sérstaklega útbúið fyrir neglur og naglabönd. Regluleg notkun stuðlar að sterkum og heilbrigðum nöglum. Setjið 1 dropa á hvora hendi eða fót og nuddið á neglur og bönd. Fjarlægið umframolíu með þurrku. Neem laufin hafa mikinn heilunarkraft og eru laufin tínd í Indlandi og Asíu. Virkar hemjandi á tásveppi og inngrónar táneglur.
 
Naglaolíupenni – Neem Nail Oil Pen   4 ml
Hentugt að hafa með sér í veskinu eða í ferðalagið. Einungis kemur það magna á trefja-oddinn sem nota á hverju sinni.



Rósmarín Fótakrem – Rosemary Foot Balm 30ml
Rósmarínolían hefur frískandi og hressandi áhrif á þreytta og sveitta fætur. Dregur á náttúrulegan hátt úr svitamyndun og sveppa- og gerlagróðri. Gott að nota eftir fótabað með Salvíu-baðolíu.
 
Fitness Fótakrem – Fitness Foot Balm 75ml
Mjúkt kremið smýgur fljótt og auðveldlega inn í húðina og hefur djúpvirkandi áhrif á fæturna, sérstaklega fyrir þurra fætur.

 
Rósmarín toner  fyrir hendur og fætur – Rosemary Leg & Arm Toner 100ml                            
Þetta létta og fitulausa lotion eykur blóðflæðið í leggjum og fótum; hindrar og kemur í veg fyrir fótkrampa, sinadrátt og þreytu. Fullkomið fyrir fólk sem vinnur mikið standandi. Setjið nokkra dropa í lófann og berið á fætur með strokum upp á við. Takið vatnið með ykkur í flugferðina til að létta álagið á fótunum, má setja yfir sokkabuxur. Einnig gott á axlir.
 

Svitalyktareyðir mildur –Deodorant Floral 50ml
Þessi mildi svitalyktareyðir inniheldur jurtir sem stuðla að því að róa mjög viðkvæma húð. Inniheldur enfin svitaheftandi efni eins og ál og engin rotvarnarefni.
 
Svitalyktareyðir frískandi –Deodorant Fresh 50ml
Blanda af salvíu og nornahesli gefa frískan ilm sem einnig hentar vel fyrir herra. Smýgur fljótt inn í húðina og skal notast sparlega. Inniheldur enfin svitaheftandi efni eins og ál og engin rotvarnarefni.

 
Silkipúður Body Powder Silk 50g
Fínmalað náttúrusilki gefur viðkvæmri húð milda vörn. Púðrið er milt, dregur í sig mikinn raka og heldur húðinni þurri, mjúkri og þægilegri. Jafnar starfsemi húðkirtlanna og ver húðina geng óhreinindum. Gott að nota sem fótapúður gegn fótsvita. Hægt að nota sem þurrsjampó fyrir ljóst hár (t.d. á ferðalögum), þá sett í lófana og strokið gegnum hárið sem verður léttara.
Silkipúðrið má nota sem matt andlitspúður og getur verið gott fyrir feita húð að dusta örlitlu á andlitið eftir notkun á andlitsolíunni.  Einnig gott fyrir þá sem þurfa að venjast því að nota ekki svitaheftandi efni.            Gott sem ungbarnapúður.
 
Húðmjólk Kveðu – Quince Body Moisturiser 150ml
Í þessari húðmjólk er mjög mikill raki. Efni frá fræjum ávaxta kveðurunnans og frá blómum hans gefa húðinni ferskleika og teygjanleika. Aðrar eðal-jurtaolíur m.a. frá gulrót og jojoba vernda og mýkja húðina. Einnig góð húðmjólk fyrir herra eftir rakstur. Mild húðmjólk fyrir allar húðgerðir. Gott að nota með Þyrniplómuolíu (Blackthorn) til að koma í veg fyrir húðslit.
 
 
Húðmjólk Rósa – Rose Body Moisturiser 150ml
Þessi húðmjólk sem inniheldur efni úr rósablöðum í möndluolíu og rósavaxi er sérlega mild og gefur húðinni raka og gerir hana slétta og flauelsmjúka. Húðmjólk Rósa má einnig nota á viðkvæma barna – og ungbarnahúð.
 
Húðmjólk Sítrónu – Lemon Body Moisturiser 150ml
Nýtt !   Þessi húðmjólk er sérstaklega frískand.

Nýjustu fréttir
Verslunin Yggdrasill flytur af Skólavörðustígnum í Mars 2010Við kveðjum...

Samstarfsaðilar

 

Móðir Jörð