Bað og sturta
Það er hrein upplifun að nota tímann í gott bað eða sturtu. Því býður Dr.Hauschka upp á sturtugel og baðolíur sem innihalda efni úr lífrænt ræktuðum jurtum og olíum, sem næra húðina og mýkja. Sturtugelið er án sápu og því sérlega milt fyrir alla húð, einnig ungbarnahúð.
Sturtugel milt – Body Wash Floral 200ml Fyrir allar húðgerðir. Þetta milda sturtugel með hlutlaust ph-gildi hreinsar húðina og er rakagefandi fyrir þurra og viðkvæma húð. Kremkennd froðan sem inniheldur mýkjandi Shea smjör, róar húðina og blanda af kjarna-olíum unnum úr rósum, sýrenu og jasmín lífga húðina og skynfærin með þægilegri lykt. Ath. sápulaust og því sérlega milt fyrir húðina. Sturtugel frískandi – Body Wash Fresh 200ml Þetta upplífgandi sturtugel inniheldur m.a. nornahelsi og svartþyrni sem styrkja húðina um leið og það gefur henni mildan þvott. Kjarna-olíur úr greip og sítrónu gefa hressandi lykt og styrkja húðina um leið og þær hreinsa hana vel. Ath. sápulaust og því sérlega milt fyrir húðina. Sturtugel sítrónu – Body wash Lemon 150 ml - nýtt frá Dr.Hauschka - sérlega frískandi ilmur úr ferskum lífrænt ræktuðum sítrónum
Baðolíur Dr. Hauschka býður upp á fimm tegundir af baðolíum sem gera baðið að hreinni nautn. Þær innihalda hreinar ilmkjarna-olíur sem gefa líkama þínum jafnvægi. Furunálabað – Spruce Bath 150 ml - gefur jafnvægi - Furuolían ýtir undir djúpa öndun og hefur slakandi áhrif á líkama og sál. Mjög góð fyrir kvef og stíflur í ennisholum. Lofnarblómabað – Lavendel Bath 150ml - slakandi og róandi - Lavendel hefur þann eiginleika að draga í sig ljóskrafta og varma sólarinnar. Þess vegna hentar Lavendel baðolían gegn streitu sem fylgir nútíma lífsstíl. Hún róar rauða viðkvæma húð og hjálpar þér að byggja upp orku. Gott að nota á kvöldin til að tryggja góðan nætursvefn.
Rósmarínbað – Rosemary Bath 150ml - vermir og örvar - Olía unnin úr rósmarínrunnanum ber í sér mikinn varma. Ilmurinn vekur upp skynfærin um leið og hann endurnærir allan líkamann. Gott fyrir þurra húð. Gott að nota á veturnar og fyrir fólk sem á til að vera fót- og handkalt, notist þá 3-4 sinnum í viku. Örvar húðina og dregur því úr myndun appelsínuhúðar. Baðolíuna skal ekki nota fyrir svefn því hún er mjög örvandi. Salvíubað – Sage Bath 150ml - styrkir og endurnærir -Endurnærandi eiginleikar salvíunnar gefa öllum líkamanum nýjan kraft. Sérstaklega gott bað eftir líkamsrækt. Hentar vel sem fótabað fyrir þreytta og sára fætur. Salvíubað er mjög gott fyrir lélegt blóðflæði og fyrir kalda og þvala fætur. Ráðlagt að nota í skolvatn fyrir andlitshúð með bóluvandamál og bólgur.
Sítrónubað – Lemon Bath 150ml Hressir, strekkir, endurnærir. - Sterkur hressandi ilmurinn af sólþroskuðum sítrónum vekur lífsandann. Notis á morgnanna fyrir frískleika og til að kæla í miklum sumarhita. Baðið stinnir slappa húð og stuðlar að minnkun appelsínuhúðar.
|









