Sonett þvottaefni fyrir tau Notkunarleiðbeiningar sem miðast við mjúkt íslenskt vatn. Vatnið á Íslandi telst mjög mjúkt því það inniheldur lítið af kalki og magnesium. Þess vegna þarf að nota tiltölulega lítið af þvotta-og hreinsiefnum til að fá tilætluð áhrif. Mjúkt og hart vatn er mælt í einingum dH frá 0°- 28°. 28°dH er mjög hart vatn. Mjúkt vatn er 0°- 7° dH sem þýðir 0-125 mg CaCO3/l Á Íslandi mælist vatn undir 1°dH
ÞVOTTADUFT samþjappað (Washing powder) Í einingakerfi 40° - 95°C (100° - 200° F) Fyrir allan hvítan og litaðan þvott úr bómull, hör, hampi og gerviefnum. Aðal innihaldsefnin í SONETT ÞVOTTADUFTINU er hrein jurtasápa. Sápa er náttúrulegasta hreinsiefnið fyrir manninn og náttúruna. Öfugt við öll önnur yfirborðsvirk hreinsiefni brotnar sápa niður eftir notkun því hún missir yfirborðsvirku eiginleikana um leið og hún binst kalkinu sem er alltaf til staðar í frárennsli og sápan brotnar því fullkomlega niður. Innihaldsefni: sápa úr jurtaolíum*, natríumkarbónat , siliköt, leir steinefni, kókosolíu alkóhól súlfat, balsamefni *. * = frá vottaðri lífrænni ræktun, úr villt vaxandi jurtum. Fáanlegt í 1.2 kg, 2.4 kg og 10 kg pakningum. Í 4,5 kg vél: þarf 50 ml/50g (3 msk) FLJÓTANDI ÞVOTTALÖGUR (Washing liquid) Í einingakerfi 30°- 95°C (85°- 200° F) Fyrir fram og topphleðslu Fyrir allan hvítan og litaðan þvott úr bómull, hör, hampi og gerviefnum. Sykurtensíð og kókosolíu alkóhól súlföt eru þau efni sem brotna auðveldast niður í náttúrunni – næst á eftir sápu – og eru mild fyrir húðina. Þau vinna vel í öllum stigum af vatni, hversu hart eða mjúkt það er, sem gerir fljótandi þvottaefnið sérstaklega hentugt fyrir hart vatn. Þennan þvottalög má einnig nota í kalt vatn og fyrir dökkan þvott. Innihaldsefni: sápa úr repjuolíu*, sykurtensíð, kókosolíu alkóhól súlfat, jurtaalkóhól (etanól), náttúruleg lavendel ilmkjarnaolía*, balsamefni*, hvirflað vatn. Fáanlegt í 120 ml (prufuflaska), 2 l, 10 l og 25 l umbúðum. * = frá vottaðri lífrænni ræktun, úr viltvaxandi jurtum. Í 4,5 kg vél: þarf 50 ml/50g (3 msk)
BLEIKIEFNI og blettahreinsir (Bleach complex and stain remover) Í einingakerfi – virkt frá 50°C (122° F) Hægt að bæta reglulega við þvottaefnið þegar hvítur þvottur er þveginn. Mjög gott til að fjarlægja bletti úr litekta efnum. Í þvottaferlinu brotnar natríumperkarbónat niður í súrefni, vatn og mineral sóda. Bleikingarferlið og niðurbrotsferlið er hið sama. Innihaldsefni: natríumperkarbónat. Fáanlegt í 450 g og 5 kg pakningum. Í 4,5 kg vél: þarf 50ml/50g (3 msk) Mikið óhrein barnaföt lögð í bleiti: 25ml/25g (11/2 msk) Ef lagt er í bleyti yfir nótt verkar bleikiefnið frá 30°C Í uppþvottavélina: Til að fjarlægja te- og kaffibletti þarf 15ml/15g (1 msk) ULLARFITA (Wool care) Fyrir reglulega endurnýjun á mikið notuðum ullarefnum; sérstaklega mælt með fyrir bleyjubuxur úr ull fyrir ungabörn. Ef notað reglulega mun SONETT ULLARFITAN gefa ullinni aftur nauðsynlega ullarfitu til að viðhalda mýkt sinni. Innihaldsefni: ullarfita, sápa úr ólívuolíu*, sykurtensíð, cetyl alkóhól, jurtaþykkingarefni, náttúruleg lavendel ilmkjarnaolía*, balsamefni*, hvirflað vatn. Fáanlegt í 300 ml flösku. * = frá vottaðri lífrænni ræktun, úr viltvaxandi jurtum. Fyrir ungbarna ullarbuxur: 1-2 tsk. í heitt vatn, bætt við 1 l af köldu vatni. Látið ullarflíkina í volgt vatnið, kreistið vel nokkrum sinnum og látið liggja í ½-1 klst. í blelyti. Skolað í volgu vatni. Í þvottavélina á ullarprógrammi: ½ tsk. í 30-40 ml af heitu vatni sem er sett í mýkingarefnishólfið á þvottavélinni. ÓLÍVU ÞVOTTALÖGUR FYRIR ULL OG SILKI (Olive washing liquid for wool and silk) Fyrir þvottavél og handþvott upp að 40°C (100°F). Ólívuolía er besti grunnurinn fyrir sápu sem er mild og hlífir ullinni. Þessi fljótandi sápa hentar sérstaklega vel til að þvo ullar- og silkifatnað. Innihald: sápa úr ólívuolíu* og repjuolíu*, sykurtensíð, jurtaalkóhól (etanól), náttúruleg lavendel ilmkjarnaolía*, balsamefni*, hvirflað vatn. Fáanlegt í 120 ml (prufuflaska), 1 l, 10 l og 25 l umbúðum. * = frá vottaðri lífrænni ræktun, úr villt vaxandi jurtum Í 4,5 kg vél; 60ml (4 msk) - 1 líter af ólívuþvottaleginum dugar í 17 þvotta Í handþvott: 15-30ml í 5 lítra af vatni TAU-MÝKINGAREFNI (Laundry rinse) g Eins og “skvetta af ediki í síðasta skolvatnið” hefur í gegnum árin sýnt sig hafa góð áhrif, þá hefur sýnt sig að þetta TAU-MÝKINGAREFNI skolar burt restum af sápu, mýkir trefjarnar í efninu og gerir litina skírari í litaða þvottinum. Innihaldsefni: hrein sítrónusýra (unnin úr matvælum), jurtaalkóhól (etanól), hvirflað vatn. Fáanleg í 1 l, 10 l og 25 l umbúðum. Í 4,5 kg vél: þarf u.þ.b. 40ml í mýkingarefnishólfið á þvottavélinni FLJÓTANDI GALLSÁPA (Gall soap liquid) g Fljótandi hreinsilögur sem hefur reynst vel á bletti frá fitu, ávöxtum, grasi, kúlupennum, blóði o.s.frv. Prófið endilega fyrst hversu litekta efnið er á földu svæði á efninu. Innihaldsefni: sápa úr ólívuolíu* og repjuolíu*, sykurtensíð, nautagall, appelsýnuhýðisolía, náttúruleg ilmkjarnaolía (Petit Grain), balsamefni*, hvirflað vatn. Fáanleg í 120 ml, 300 ml, 1 l og 10 l umbúðum . * = frá vottaðri lífrænni ræktun, úr villt vaxandi jurtum Til að ná stökum blettum: Setjið óþynnta sápuna á blettinn og látið virka í 10-15 mín. Þvoið vel úr eða setjið flíkina beint í þvottavélina. Til að fá öflugri hreinsun: Í 4,5 kg vél er sett 20-30ml af gallsápu og þvegið við 30°-60°C GALLSÁPA (Gall soap bar) g Hefðbundin blettasápa, mjög virk á bletti frá kúlupennum, bleki, blóði, ávöxtum o.fl. Prófið endilega fyrst hversu litekta efnið er á földu svæði á efninu. Innihaldsefni: hrein sápa úr pálmaolíu, kókoshnetuolía, nautagall og klórófíl. Fáanleg í 90 g stykkjum. Notkun: Bleytið sápustykkið með vatni og nuddið á þurrt efnið, Látið virka í 10-15 mín. Þvoið vel úr eða setjið flíkina beint í þvottavélina. |







