Yggdrasill býður upp á mikið úrval af tei og kaffi. Og allt að sjálfsögðu lífrænt ræktað. Mikið af teinu og kaffinu er einnig vottað fair trade
Clipper býður upp á mikið úrval af hollum, bragðgóðum og ljúffengum teum. Jurtate, grænt te, hvítt te og svart te. Bæði er um að ræða te þar sem aðeins er ein tejurt og einnig ýmsar góðar blöndur af tejurtum og einnig blöndur með ávöxtum. Jurtate er te sem ekki inniheldur koffein og hentar því fólki á öllum aldri ekki síst börnunum.
Um Lífrænu Tein frá Clipper
Jurtate – Hvítt te – Grænt te – Svart te Margar tegundir – sem gæla við bragðlaukana Athugið að þegar við drekkum te fáum við líka vatn. Allt jurtateið er koffeinlaust.
Svart te, grænt te og hvítt te eru allt te af sama terunnanum á latínu heitir hann “Camellia Sinensis”. Það inniheldur koffein. Mismunurinn felst í því hvaða hluti runnans er notaður og hvernig teið er unnið. Bestu og dýrustu laufin fara í hvíta teið sem er talið hollast og innihalda langmest af andoxunarefnum.
Jurtate - inniheldur ekkert koffein Redbush - Rauðrunnate Rauðrunnate er bragðmilt og inniheldur mikið af steinefnum m.a. járn. Það inniheldur einnig C-vítamín og er því sérstaklega gott fyrir járnbúskapinn. Það er svo milt að það má gefa það ungabörnum og hjá þeim getur það dregið úr magakrampa, því það er vöðva-slakandi. Rauðrunnate hefur verið mikið rannsakað og það gerir margt gott. Það er m.a. mjög andoxandi.
Liquirice - Lakkrísrót Lakkrísrótin er þekkt læknigajurt. Hún inniheldur flavoníða sem eru góðir fyrir maga og meltingu Lakkrísrótin gefur mjög sætt bragð og er hægt að nota hana með öðrum teum til að fá sætt bragð án sykurs. Notuð í hófi fyrir þá sem hafa háan blóðþrýsting.
Fennel - fennelfræ Fennel er gott fyrir meltinguna. Það hjálpar líkamanum að melta matinn og losar um loft. Gott að gefa ungabörnum við vindverkjum. Þá þarf aðeins að gefa smávegis úr teskeið. Bragðgott te sem hefur keim af lakkrísbragði
Dandelion - Fíflablöð Fíflablöðin eru talin sérstaklega holl og alment styrkjandi fyrir líkamann. Fíflablaðate er vatnslosandi
Camilla - Kamilla Kamillilluteið er úr kamillublómum. Kamillan er græðandi og róandi fyrir meltingarveginn og hún er einnig góð að drekka fyrir svefninn.
Nettle - Brenninetla Brenninetlan er þekkt lækningajurt og inniheldur ýmis góð steinefni og vítamín. Hún inniheldur töluvert af járni.
Peppermint – Piparmynta Piparmyntute er mjög ferskt á bragðið og er vekjandi. Það er einnig milt vatnslosandi Wild berry - Villt ber Inniheldur honeybush, ananas, hibiscus og bláber
Orange coconut - Appelsínu kókos Inniheldur honeybush, ananas, appelsínuhýði og kókos.
Red fruits – Rauð ber Inniheldur honeybush, ananas, ylliber, hibiscus og brómber. Honeybush er skylt rauðrunna og hefur lík áhrif Almennt um jurtate - Blaðate er best að drekka á morgnana og fyrri part dags því þau eru vekjandi. Blómate eru best á kvöldin því þau eru róandi og slakandi.
Grænt te - inniheldur koffein Grænt te er mjög andoxandi og hressandi. Það styrkir ónæmiskerfið
Grænt te er bæði til í pokum og í lausu Það inniheldur koffein, og er hollara en svart te Grænt te – fair trade. Grænt te með aloa vera - Inniheldur grænt te, náttúrulegt sítrónubragðefni 5% og aloa vera 1%. Grænt te chai
Hvítt te - inniheldur einnig koffein en minna en grænt te Hvítt te er það nýjasta hér á vesturlöndum í tei, en hefur lengi verið þekkt í Kína eða í meira en 1500 ár. Það er þrisvar sinnum öflugra en grænt te hvað varðar andoxunaráhrif þess. Það styrkir ónæmiskerfi líkamans og hamlar sýkingum. Einnig hefur það hreinsandi áhrif.
Hvítt te með engifer - Inniheldur 20% af engifer, en engifer gefur ferskt bragð og hegfur hreinsandi áhrif. Hvítt te með appelsínu– ferskt appelsínubragð Hvítt te með kanel – með ljúffengu kanelbragði Hvítt te með sólberjum – með ljúffengu sólberjabragði
Rauðrunnate - Rooibos teið sem allir elska Rauðrunnate hentar fólki á öllum aldri frá ungabörnum til eldra fólks. Það er steinefnaríkt og bragðgott - það er koffeinlaust eins og jurtatein og inniheldur mjög mikið af andoxunarefnum. Það er mjög milt og sérlega gott eins og það er, en einnig sérlega gott með mjólk og hunangi, með ávaxtasafa út í eða hvernig sem fólki dettur í hug að blanda því. Clipper býður upp á rauðrunnate og honeybush te sem er mjög skylt rauðrunnateinu og hefur svipuð áhrif og bragð.
|








