Lífrænt ræktað inniheldur meira af næringarefnum og andoxunarefnum.

Samkvæmt nýjum áreiðan-legum rannsóknum þá inniheldur lífrænt ræktað fæði meira af næringarefnum og andoxunarefnum . Sjá nánar .

 

 

 

Spírubrauð
úr lífrænt ræktuðu
spíruðu heilu hveitikorni
 
Spírur eru ungar grænar plöntur. Til að fá korn og baunir til að spíra þarf að leggja þau í bleyti í vatni. Við spírunina losnar mikið magn ensíma og næringarefnainnihald stóreykst. Við spírun á hveitikorni hverfur glútenið svo til alveg, þannig að mjög margir sem þola ekki glúten þola spírað hveitikorn.
 
Við spírun:    eykst virkni ensíma, próteininnihald eykst og einnig vítamíninnihald, sérstaklega B-vítamín. 
                       
Spírun:   bætir meltinguna og  styrkir ónæmiskerfið
 
Spírubrauð: innihalda ekkert mjöl, þau eru einungis gerð úr heilhveitispírum. Þau innihalda ekkert salt, engin viðbætt sætuefni, ekkert lyftiduft og ekkert ger. Þau eru mjög trefjarík,
því þau eru gerð úr heila korninu með hýðinu.
 
Spírubrauð eru til í nokkrum bragðtegundum:
 
                        Hreint spírubrauð
                        Spírubrauð með sólblómafræjum
                        Spírubrauð með döðlum
                        Spírubrauð með rúsínum
                        Spírubrauð með gulrótum og rúsínum
 

Spírubrauðin eru holl og næringarrík fyrir alla, en henta sérstaklega vel fyrir börn og þá sem þurfa að forðast salt.

 

 

 

 
Nýjustu fréttir
Verslunin Yggdrasill flytur af Skólavörðustígnum í Mars 2010Við kveðjum...

Samstarfsaðilar

 

Móðir Jörð