Lífrænt ræktað inniheldur meira af næringarefnum og andoxunarefnum.

Samkvæmt nýjum áreiðan-legum rannsóknum þá inniheldur lífrænt ræktað fæði meira af næringarefnum og andoxunarefnum . Sjá nánar .

 

 

 

Lífræn ræktun

 

Hvers vegna lífræn ræktun? 

Til þess að geta svarað þessari spurningu þurfum við að skoða hina hefðbundnu ræktun eins og hún er stunduð í dag. Í hefðbundinni ræktun er notaður tilbúinn áburður, jurtalyf gegn ýmsum sjúkdómum, skordýraeitur og hormónalyf til að eyða illgresi. Allt miðar að því að ræktunin verði auðveld og að hámarks uppskera og hagnaður náist. Til þess að það sé unnt eru einnig notuð ýmis kemisk efni til þess að uppskeran skemmist ekki t.d. sveppaeyðandi lyf. Auk þess má nefna brennisteinsmeðferð á þurrkaða ávexti, geisla-og gasmeðferð á grænmeti og ávexti. Einnig eru notuð rotvarnarefni, þráavarnarefni, tilbúin bragðefni og litarefni í tilbúin matvæli. Þótt alltaf sé verið að reyna að sannfæra okkur um að gott eftirlit sé með matvælaframleiðslu og það sé tryggt að þessi óæskilegu efni sem notuð eru séu ekki yfir leyfilegum mörkum, þá vitum við ekki hvar mörkin eru. Hver getur líka sagt að við þolum hættuleg eiturefni ef þau eru í smáum skömmtum. Við hljótum frekar að vilja sleppa við þessi efni ef það er hægt. Og það er hægt. Í lífrænni ræktun eru þau ekki notuð.

 

Við einhliða notkun á tilbúnum áburði verður jarðvegurinn mjög rýr og háður hinum tilbúna áburði, sem inniheldur aðeins brot af því sem frjósamur jarðvegur þarf að hafa til að næringarríkar og heilbrigðar afurðir geti vaxið í honum. Við getum t.d. spurt okkur að því hvers vegna sé verið að bæta járni og vítamínum í flestallar tilbúnar kornvörur eins og morgunkorn og barnamat? Það er vegna þess að náttúrulegt járn og B-vítamín, sem kornið á að innihalda er horfið úr því vegna einhliða notkunar á tilbúnum áburði. Lífrænt ræktað korn inniheldur bæði járn og B-vítamín í náttúrulegu formi sem líkaminn á auðvelt með að nýta. Það inniheldur einnig öll hin mikilvægu snefilefni sem eru í heilbrigðum frjósömum jarðvegi, en það er einmitt eitt af því mikilvægasta í lífrænni ræktun, að viðhalda jarðveginum heilbrigðum og frjósömum með náttúrulegum aðferðum.

 

Áður fyrr þekktu bændur ekki annað því tilbúin hjálparefni voru ekki til. Þeir kölluðu ræktunina ekki lífræna, þetta var bara þeirra náttúrulega aðferð við að rækta. Seinna fóru menn að gera sér grein fyrir óæskilegum áhrifum hjálparefna og minnkandi frjósemi jarðvegsins í kjölfarið og fóru markvisst að byggja upp aðrar aðferðir. Lífræn ræktun byggir á fullkomnu jafnvægi í náttúrunni.  Bóndinn ber virðingu fyrir jörðinni og notar ekki tilbúinn áburð, ekkert skordýraeitur, engin eitruð jurtalyf eða verksmiðjuframleidd hormónalyf. Í staðinn notar hann lífrænan safnhaugaáburð og náttúruleg jurtalyf sem gefa jarðveginum aukna næringu. Jurtin brenninetla er mikið notuð í þessum tilgangi, en hún er sérstaklega næringarrík. Einnig eru notuð sáðskipti, en það þýðir að sama tegundin er ekki ræktuð ár eftir ár í sama jarðvegi.

 

Í vinnslu á lífrænt ræktuðum afurðum gilda sömu reglur og í ræktuninni sjálfri. Ekki er leyfilegt að nota tilbúin hjálparefni, einungis náttúruleg. Ekki eru notuð litarefni, bragðefni eða geymsluefni. Einnig er lögð áhersla á að vinnsluaðferðir séu mildar svo næringarefnin í hráefninu viðhaldist. Korn er t.d. ekki bara malað á steinkvörn, heldur á hæggenga steinkvörn.

 

Í henni felst bæði virðing fyrir jörðinni og manninum, ekki bara fyrir neytandann sem neytir afurðanna heldur einnig fyrir manninn sem ræktar jörðina og fær að gera það án þess að verið sé að úða á hann eitri, en það gerist því miður víða í hefðbundinni ræktun. Við hjá Yggdrasil leggjum mikla áherslu á að þær vörur sem við erum að selja séu vottaðar lífrænt ræktaðar af viðurkenndum vottunaraðilum. Við verslum okkar lífrænt ræktuðu vörur af aðilum sem hafa mikla reynslu af lífrænni ræktun og stunda hana af einlægni og hugsjón. Frá upphafi hefur það einnig verið okkar hugsjón að vera eingöngu með lífrænt ræktaðar matvörur, því að okkar mati eru það hreinustu og bestu matvörur sem völ er á. 

 

Demeter (bio-dynamisk) stimpillinn er alþjóðlegur, en í demeter ræktun eru ströngustu kröfur í lífrænni ræktun. Aðrar gæðamerkinger eru: EKO (Evrópa), Statskontrollerat ökologisk (Danmörk), Debio ökologisk landbruk (Noregur) og Tún vottunarstofa (Ísland).

 

Lífræn ræktun fer fram svo að segja í öllum heimshornum og fer þeim bændum sífellt fjölgandi sem hana stunda. Einnig fer þeim neytendum sífellt fjölgandi sem vilja lífrænt ræktaðar vörur. En við verðum að vera á varðbergi því sú hætta er fyrir hendi þegar eftirspurn eykst að þá sé slakað á kröfunum svo auðvelt sé að fullnægja eftirspurninni. Það má ekki gerast. Við verðum að standa vörð um gæðin og krefjast þess að þau séu ávallt eins og þau gerast best.     

                  Texti Hildur Guðmundsdóttir

 

 

 

 

Nýjustu fréttir
Verslunin Yggdrasill flytur af Skólavörðustígnum í Mars 2010Við kveðjum...

Samstarfsaðilar

 

Móðir Jörð