Lífrænt ræktað inniheldur meira af næringarefnum og andoxunarefnum.

Samkvæmt nýjum áreiðan-legum rannsóknum þá inniheldur lífrænt ræktað fæði meira af næringarefnum og andoxunarefnum . Sjá nánar .

 

 

 

Demeter er alþjóðleg gæðamerking fyrir vörur sem eru lífrænt bíódynamískt ræktaðar.  Bíódýnamísk ræktun er einnig kölluð lífelfd ræktun og eru reglur í þeirri ræktun ennþá strangari en í annarri lífrænni ræktun.  Felst það m.a. í því að markvissara er unnið með að auka frjósemi jarðvegsis og  viðhalda honum.

Bíódýnamísk ræktun er í rauninni upphafið af lífrænni ræktun nútímans.  Nútíma lífræn ræktun er í raun ekki afturhvarf til náttúrunnar, heldur er það ræktun þar sem unnið er í fullkomnu jafnvægi og tengslum við náttúruna út frá nútíma meðvitund þar sem notast er við nútíma tækni og þekkingu til þess að fá sem mest út úr þeim afurðum sem verið er að rækta, en í fullkominni sátt við náttúruna.   Þar er hugsunin ekki einungis að ná fram því besta sem hægt er, heldur að skia jarðveginnum ennþá frjósamari og meira lifandi en þegar byrjað var að rækta. Í þessari ræktun er meðal annars stuðst við sáningardagatal sem gefið er út árlega og koma þar fram leiðbeiningar um það hvernig bestur árangur náist með því að nýta sér krafta sem búa í náttúrunni.

 

Nýjustu fréttir
Verslunin Yggdrasill flytur af Skólavörðustígnum í Mars 2010Við kveðjum...

Samstarfsaðilar

 

Móðir Jörð