Náttúrulegt tannkrem - án flúors
Tannkrem og munnskol frá WalaVita Tannkrem sem vinnur gegn sýkingum og tannholdsbólgum sem sannast hefur í viðamikilli rannsókn. Inniheldur virkar lífrænt ræktaðar lækningajurtir og náttúrulegar ilmkjarnaolíur.
Klínísk tvíblind samanburðarrannskókn á virkni tannkrema gegn tannholdsbólgum. Wala Vita Mintutannkrem: Rannsóknir sýna skjóta virkni gegn tannholdsbólgum. Náttúrulega minntutannkremið frá Wala Heilmittel GmbH dregur úr tannholdsbólgum óvenju fljótt miðað við fjögur önnur tannkrem í samanburðarrannsókn. Sýnt var fram á þetta í tvíblindri klínískri langtímarannsókn* sem spann 6 mánaða tímabil og voru þáttakendur 125 sjálfboðaliðar. WalaVita Mintutannkremið var eina varan í rannsókninni sem sýndi tölfræðilega yfirburði á minnkun á tannholdsbólgum á öllum 3 tímabilunum sem tekin voru fyrir (eftir reglulega notkun í 1,3 og 6 mánuði). Hinar fjórar vörurnar sem prófaðar voru - Colgate total, Dentagard, Parodontax og WalaVita Sítrónutannkrem - sýndu einungis verulega virkni eftir reglulega notkun í 6 mánuði. Rannsóknin var gerð í Dresden Þýskalandi undir umsjá P. Thomas Hoffmann, formanni þýska tannlækna- og tannskurðlæknafélagsins (Society for Dental, Oral and Maxillary Surgery). |









