Lífrænt ræktað inniheldur meira af næringarefnum og andoxunarefnum.

Samkvæmt nýjum áreiðan-legum rannsóknum þá inniheldur lífrænt ræktað fæði meira af næringarefnum og andoxunarefnum . Sjá nánar .

 

 

 

Grein úr Telegraph.co.uk

Birtist miðvikudag 23.janúar 2008

Lífrænt ræktaður matur 'betri en hefðbundin framleiðsla' 

By Lucy Cockcroft
Last Updated: 1:07am GMT 29/10/2007
 

Lífrænt ræktaður matur er næringarríkari en matur framleiddur á hefðbundinn hátt og inniheldur meira af andoxunarefnum sem geta minnkað líkur á hjartasjúkdómum og krabbameini, samkvæmt viðamikilli fjögurra-ára rannsókn.

Vísindamenn sem stýrðu þessu 1,5 milljarða króna verkefni – stærsta rannsóknarverkefni sem tengist lífrænt ræktaðri fæðu – vona að rannsóknarniðurstöður þeirra leiði til þess að Ríkisstjórnin mæli með lífrænt ræktuðum fæðuvörum og hætti að lýsa því yfir að fæðuval sé að mestu leyti “val á líffstíl”

Niðurstöðurnar koma frá professor Carlo Leifert í Háskólanum í Newcastle þar sem rannsóknin fór fram og var þessi rannsókn komið á af Evrópubandalaginu og fyrirtækjum í matvælaframleiðslu. Í þessum niðurstöðum kemur fram að lífrænt ræktaðir ávextir og grænmeti innihalda allt að 40% meira af andöxunarefnum sem geta minnkað áhættu á krabbameini og hjartasjúkdómum.

Prof Leifert sagði að heilsufarslegur ávinnigur sé svo sláandi mikill, að það að skipta yfir í lífrænt ræktaðan mat jafnist á við að borða auka skammt af grænmeti og ávöxtum á hverjum degi.

Hann bætti við: Stærsta næringarfræðilega vandamál dagsins í dag er mikil aukning á offitu sem tengist hjatasjúkdómum og lélegri heilsu. Ef við getum tekið inn það góða sem við þurfum í meira samþjöppuðu formi þá gæti það verið mjög mikilvægt skref framávið. 

Rannsóknaraðilar hjá Quality Low Imput Food (QLIF)verkefninu ræktuðu ávexti og grænmeti og voru með nautgripi á 725 ekrum á býlinu Nafferton Farm í Northumberland. Þeir ræktuðu bæði lífrænt og hefðbundið hlið við hlið – kál , sallad, gulrætur, kartöflur og hveitikorn - og var uppskeran rannsökuð og bornir saman ýmsir þættir eins og næringarleg gæði.

Vísindameninrnir komust að því að andoxunarefni í mjólkurvörum voru allt að 90% meiri í lífrænni mjólk heldur en í hefðbundinni mjólkurframleiðslu og einnig að í lifrænt ræktuðu grænmeti væru andoxunarefnin allt að 40% meiri.

Fæðuráðgjöf Bretlands,Food Standards Agency, sem hefur haldið því fram að lífrænt ræktuð fæða sé ekki heilsusamlegri en hefðbundin, hefur nú staðfest að hún muni skoða þessar rannsóknarniðurstöður og íhuga hvort breytt verði um áherslur í ráðgjöf.
Mörgum hefur á undanförnum árum mistekist að sýna fram á aukið næringargildi í lífrænt ræktuðum afurðum.

Í janúar viðurrkenndu aðilar hjá Soil Assosiation - sem er leiðandi aðili fyrir lífræna ræktun – að skortur væri á rannsóknum sen sýndu fram á það að lífrænt ræktuð fæða væri hollari. En Patric Holden framkvæmdastjóri hjá Soil Assosiation sagð að þessar síðustu rannsóknarniðurstöður gætu hjálpað til við að koma af stað afgerandi breytingum í matvælaframleiðslu..

 

• Að borða rautt kjöt og að drekka áfengi jafnvel í litlu magni, eykur líkur á því að mynda krabbamein. Þetta mun verða viðvörun frá sérfræðingum í þessari viku. Niðurstöðurnar verða kynntar af World Cancer Reseach Fond eftir fimm-ára rannsók.

 

Nýjustu fréttir
Verslunin Yggdrasill flytur af Skólavörðustígnum í Mars 2010Við kveðjum...

Samstarfsaðilar

 

Móðir Jörð