Lífrænt ræktað inniheldur meira af næringarefnum og andoxunarefnum.

Samkvæmt nýjum áreiðan-legum rannsóknum þá inniheldur lífrænt ræktað fæði meira af næringarefnum og andoxunarefnum . Sjá nánar .

 

 

 

Hómópatía.

Meðferð hjá Hómópata byggist á viðtölum þar sem leitast er við að fá sem skýrasta mynd af einstaklingnum frá sem flestum sjónarhornum. Farið er ítarlega yfir líkamleg, andleg og tilfinningaleg einkenni. Hin hómópatíska meðferð byggir síðan á þeim upplýsingum sem þá liggja fyrir. Lengd meðferðar er breytileg eftir einstaklingum. Þó má segja að því lengur sem veikindin hafa varað því lengri tíma megi búast við að meðferðin taki.

 

Möguleiki til sjálfshjálpar.
Þar sem hómópatían vinnur vel með bæði öðrum heildrænum meðferðum og hefðbundnum læknismeðferðum, er hún góð leið fyrir einstaklinga sem vilja taka meiri ábyrgð á eigin heilsu og líðan. Remedíur, en svo kallast „lyf“ hómópata, trufla ekki lyfjagjöf eða aðra læknismeðferð.

 Remedíur, lyklar að lausnum.
Hómópatar nota við meðferðir sínar svokallaðar remedíur eða ,,smáskammta“ af efnum sem unnin eru úr jurta-, dýra-, steinaríkinu og fleiru. Efnin eru þynnt út, svo mikið að þau virka fremur sem hvatar eða skilaboð heldur en að hafa beina efnavirkni og eru þannig með öllu skaðlaus og hafa engar aukaverkanir. Hins vegar felst virknin í því að virkja lífsorkuna og hæfnina einstaklingsins til að viðhalda góðri heilsu.

 

Kinesiology

Vöðvapróf og orkujöfnun.
Hagnýt Kinesiology var fyrst nýtt sem meðferðarform árið 1964 en fræðin eru að mestu forn að uppruna. Nafnið Kinesiology ber í sér fræði þar sem gert er grein fyrir hreyfingu/viðbrögðum vöðva og liðamóta. Kinesiology notar vöðva, styrk þeirra og rafleiðni, til að mæla ástand líkamans og prófa á honum ýmislegt, svo sem fæðu, bætiefni, umhverfis efni og rafmagnsmengun. Innan hennar eru mismunandi prófunar- og meðferðarform en sú aðferð sem hér er rætt um er kölluð ,,hagnýt, Kinesiologya“.
Þegar við prófum vöðva erum við að seilast inn í samskipta kerfi líkamans. Hvert sinn sem vöðvinn reynist ,,máttlaus“ er það viðvörun frá líkamanum um að eitthvað sé ekki í lagi.
Meðferðarformið er bank á nálastungupunkta.
 

Samantekt
Árný A. Runólfsdóttir
Hómópati LCPH, skráður græðari, jógakennari og starfsmaður Yggdrasils.

Árný er fædd í Litla-Sandfelli Skriðdal árið 1943 og hefur starfað sem ráðgjafi í heilsuverslunum í 15 ár, bæði á Akureyri og í Reykjavík. Árný starfar nú í versluninni Yggdrasill í Reykjavík. Hún lauk námi í Norræna Heilunarskólanum árið 1985, tók Reiki 1. og 2. stig árið 1990, jógakennaranámi frá Kripalu Center for Yoga and Health, árið 1994, lauk hómópatanámi LCPH frá The College of Practical Homoeopathy í London árið 2007, tók áfanganám í Level I Diagnostic Kinesiology, 2001 og Diagnostic Kinesioligy frá Newlands Park Natural Health Center í London árið 2007.
Árný er félagi í Organon, samtökum Hómópata á Íslandi og í BIG, Bandalagi Íslenskra Græðara.

Heimasíða Árnýar er hér.

Nýjustu fréttir
Verslunin Yggdrasill flytur af Skólavörðustígnum í Mars 2010Við kveðjum...

Samstarfsaðilar

 

Móðir Jörð