Hollur matur handa öllum!
Ég heiti Ebba Guðný og er 33 ára húsmóðir og móðir Hönnu Huldu 6 ára og Hafliða 3gja ára. Ég fór að spá mikið í mataræði barna þegar ég eignaðist Hönnu mína. Ég hafði verið byrjuð áður að spá í hollt mataræði tengdu betri líðan en var ekki komin ýkja langt. Það fór allt af stað er ég eignaðist frumburðinn og hafði ég gagn og gaman af. Ég hafði svo óskaplega mikla trú á því að mikil lífsgæði væru fólgin í því að venja barn strax á hollan og næringarríkan mat. Og það er ekki heldur erfitt því úrval og aðgengi að slíkum mat hefur aukist svo svakalega. Eina sem þarf til í raun er góður vilji og framkvæmdagleði.
Margir hafa þó áhyggjur af verði og ég veit mætavel að það er misjafnt í buddunni hjá fólki - því miður - en mín reynsla er sú að þegar ég kaupi gott hráefni þá nýti ég það vel og engu er hent. Einnig er mín reynsla sú að maður borðar minna þegar maður er vel nærður líkamlega og andlega. Líkaminn er þá ekki stanslaust að kalla á góða fitu, prótein, vítamín og steinefni (en það gerir hann) og oft án árangurs því við troðum í hann bara enn meira af rusli sem fullnægir okkur hvorki andlega né líkamlega. Hann hættir ekki fyrr en hann fær góða fæðu sem nærir hann og kætir og þar erum við að tala um lífsnauðsynlega fitu, heilkorna brauð og grauta, grænmeti og ávexti svo eitthvað sé nefnt. Það geta allir lært að búa til mat. Það er engin geimvísindi. Einfaldur matur er líka oft besti maturinn.
Ég kunni lítið er ég byrjaði og tek ég stöðugum framförum og er það sérlega ánægjulegt. Það er óskaplega gaman að setjast niður með
fjölskyldunni og borða góðan mat sem gefur öllum gott í kroppinn. Allir verða svo glaðir. Ég er þó langt frá því að vera fullkomin og borða stundum tóma vitleysu
en nýt þess þá í botn. Samviskubit er streituvaldur og best að henda því bara út í sjó og borða vitleysuna þegar mann langar til með stæl. Og kenna börnum okkar það sama. Ekki koma inn hjá þeim samviskubiti í afmælum, veislum í útlöndum og svo framvegis. Það er ekki hægt að vera fullkominn í þessu frekar en öðru. Það sem við borðum dags daglega er það sem skiptir máli - hitt kryddar lífið og tilveruna.
Hanna mín er óskaplega ljúf og góð og borðar það sem ég segi henni, hún er þó engin matmanneskja og er matgrönn. Ég botna ekkert í því þar sem ég er mikið matargat og borðaði lambakjöt með sósu, kartöflum, rauðkáli og baunum örugglega eins árs. Sonur minn hann Hafliði er líka ljúfur og yndislegur en þverari en allt og borðar ekki neitt sem hann var ekki búinn að sjá áður en hann varð eins og hálfs árs. Hann vill ennfremur mikið af maukuðum mat (súpur, pottrétti, grauta oþh) og er oft að gera mömmu sína vitlausa. Hann vill ennfremur eitthvað í einn mánuð og steinhættir svo allt í einu alveg upp úr þurru. Undarlegt:-) en ég hefreynt að búa ekki til stríð á heimilinu. Oft fæ ég hann til að borða í góðu með alls kyns klækjum og ef ekki þá bara fer hann frá borðinu og er meira en sáttur við það og fær ekkert í staðinn. Biður ekki einu sinni um það. Svo þver er hann. En ég hef fulla trú á honum og að þetta lagist. Þá á hann ekkert eftir að botna í sér að hafa ekki borðað allt þetta góðgæti sem ég var að reyna að bjóða honum.
Ég er enginn snillingur en ég hef mikla reynslu af því að gefa börnum hollan mat og útbúa hann á þann hátt að þau vilji hann. Ég er kennari að mennt en vinn núna eingöngu við að halda námskeið og fyrirlestra um hollt mataræði fyrir börn. Ég er alltaf að lesa mér til og er endalaust að gera
tilraunir í eldhúsinu. Þetta er mitt helsta áhugamál og langar mig heilshugar til að koma því sem ég veit til sem flestra því eins og ég sagði áður held ég að mikil lífsgæði fylgi því að borða hollan og næringarríkan mat.
Ég óska ykkur öllum góðs gengis og býð þá sem hafa áhuga velkomna á námskeið í Yggdrasil þegar þau eru auglýst.
Hjartans kveðjur,
Ebba