Hvers vegna lífrænt ræktað fyrir barnið? Kornfæði er undirstaðan í fæði ungra barna. Það hefur mjög fjölbreytt innihald næringarefna. Í því er eggjahvíta, steinefni, snefilefni og vítamín. En það er ekki sama hvernig kornið er meðhöndlað. Korn sem hefjur verið ræktað með tilbúnum áburði og eiturefnum og ræktunin verið einhliða þ.e. sama tegundin ræktuð ár eftir ár í sama jarðvegi, verður næringarsnauðara, því jarðvegurinn rýrist, hann gefur ekki endalaust af sér ef ekki er hlúið að honum og honum veitt næring. Auk þess verða alltaf leifar af tilbúna áburðinum og eiturefnunum í afurðunum. Við lífræna ræktun er ekki notaður tilbúinn áburður og engin eiturefni. Í stað þess er notaður safnhaugaáburður sem gerður er úr rotnandi jurtaleyfum og ýmis jurtalyf. Á þann hátt endurnýjast jarðvegurinn og fær tilbaka þau steinefni og önnur næringarefni sem hann gaf af sér. Einnig er í lífrænni ræktun notuð víxlræktun. Þá er sama tegundin ekki ræktuð ár eftir ár í sama jarðvegi, heldur víxlað milli tegunda. Í lífrænni ræktun er því jarðvegurinn heilbrigðari og gefur því af sér næringarríkari og hollari matvæli. Kornafurðir úr korni sem er ræktað á þennan hátt eru auðugar bæði af járni og B-vítamínum og er því engin ástæða til að bæta tilbúnu járni og vítamínum í þær. Um ungbarnafæði og um barnamatinn frá Aurion. Lesa nánar
|








