Dr. Hauscka Húðvörur í sérflokki

WALA, fyrirtækið sem framleiðir Dr. Hauschka snyrtivörurulínuna, var stofnað fyrir yfir 70 árum síðan og framfylgir tilgangi Dr. Rudolf Hauschka “að styðja við græðingu mannkyns og jarðarinnar.”

Árið 1967 kom á markaðinn Dr. Hauschka húðvörurnar, sem byggðu á byltingarkenndri nálgun að fegurð byggir á heilbrigði húðar.

Dr. Hauschka húð- og andlitsvörurnar eru sérstaklega samsettar til að endurheimta fegurð með því að vinna með náttúrulegum endurnýjunarferlum húðarinnar.

Fyrir líkamann eftir baðið

Eftir bað eða sturtu viljum við viðhalda tilfinnningu um ferskleika í marga klukkutíma. Dr.Hauschka býður upp á margar heildrænar og lífrænar vörur sem vernda húðina og gefa henni jafnvægi. Þessar vörur stuðla allar að heilbrigði húðarinnar um leið og þær vernda hana gegn utanaðkomandi álagi. Athugið að alltaf skal bera húðolíur á raka húð.

Húð- og nuddolíur

Dr.Hauschka húð- og nuddolíur byggja upp vellíðan og varðveita tengsl milli líkama, sálar og tilfinninga. Allar olíurnar innihalda kjarna-olíur og í grunninn er jarðhnetuolía. Nuddist inn í húðina eftir sturtu eða bað.

Birki- Arnikuolía – Fitness Body Oil 100ml

Ilmkjarna-olía úr birki endurnærir líkamann eftir líkamsæfingar á meðan arnikan gælir við húðina með vermandi kröftum sínum. Dregur úr eða jafnvel kemur í veg fyrir harðsperrur. Minnkar liðverki.

Þyrniplómuolía – Blackthorn Body Oil 100ml - slitolía !

Hentar almennt til að hita og vernda líkamann. Sérstaklega virkar hún til að koma í veg fyrir húðslit og til að styrkja húðina. Inniheldur þyrniplómublóm, birkilauf og jóhannesarjurtaurtaveig.

Lofnarblómaolía – Lavender Body Oil 100 ml

Lavendel jurtin fangar lóskrafta og varma sólarinnar og er því sérlega góð slakandi gegn streitu og lifnaðarháttum nútímans. Hún róar rauða, erta húð og færir þér nýja krafta. Inniheldur lavendel kjarnaolíu og ersérstaklega góð fyrir viðkvæma húð.

Mór Lavendelolía – Moor Lavendel Body Oil 100ml

Séstaklega hjálpleg olía þar sem hún verndar fólk sem er viðkvæmt fyrir loftmengun og snöggum veðrabreytingum. Inniheldur mó, hestakastaníu og klóelftingar veigar sem og lofnarblóma kjarnaolíu. Hestakastanían í olíunni er sérstaklega góð fyrir æðahnúta.

Sítrónuolía – Lemon Bath Oil 100 ml

Sítrónuilmurinn vekur lífskraftana. Sérlega góð á morgnana og vekur þá bæði líkama og skynfæri. Stuðlar að minnkun á appelsínuhúð. Góð á feita og slappa húð. Kjarnaolíumagn er 5%.

Rósaolía – Rose Body Oil 100ml

Rósin sem stendur fyrir fullkomnu jafnvægi og fegurð er undirstaðan í þessari verðmætu olíu. Hún myndar verndandi himnu yfir viðkvæma húð og veitir húðinni styrk og jafnvægi. Einstaklega góð gegn ofsaþreytu og slappleika. Sérstaklega góð fyrir ungabörn.

Rósmarínolía – Rosemary Body Oil 100ml

Mjög hitandi olía, notið því reglulega á veturna til að örva hitaferli líkamans. Rósmarínolíu ætti ekki að nota að kvöldi til því hún örvar heilastarfsemina. Inniheldur Rósmarín kjarnaolíur.

Jóhannesarjurtaolía – St John´s Wort Body Oil 100ml

Jóhannesarjurtin fær mann alltaf til að hugsa til sólarinnar með fallegu gulu blómunum sem príða jurtina – hún velur alltaf heitasta og þurrasta stað skógarins til að festa rætur og blómastrar á bjartasta tíma ársins. Notið olíuna fyrir mjög viðkvæma húð. Jóhannesarjurtin er náttúrulegt þunglyndislyf.

Líkamsvörur - Fyrir hendur og fætur

Handáburður – Hand Cream 50ml

Inniheldur jurtir sem viðhalda rakanum í húðinni og hjálpa við endurnýjun húðfrumnanna. Fer vel inn í húðina og mýkir án þess að skilja eftir fitu á húðinni. Hefur reynst vel fyrir exem og psoriasis húð.

Naglaolía – Neem Nail Oil 30ml

Sérstaklega útbúið fyrir neglur og naglabönd. Regluleg notkun stuðlar að sterkum og heilbrigðum nöglum. Setjið 1 dropa á hvora hendi eða fót og nuddið á neglur og bönd. Fjarlægið umframolíu með þurrku. Neem laufin hafa mikinn heilunarkraft og eru laufin tínd í Indlandi og Asíu. Virkar hemjandi á tásveppi og inngrónar táneglur.

Naglaolíupenni – Neem Nail Oil Pen   4 ml

Hentugt að hafa með sér í veskinu eða í ferðalagið. Einungis kemur það magna á trefja-oddinn sem nota á hverju sinni.

Rósmarín Fótakrem – Rosemary Foot Balm 30ml

Rósmarínolían hefur frískandi og hressandi áhrif á þreytta og sveitta fætur. Dregur á náttúrulegan hátt úr svitamyndun og sveppa- og gerlagróðri. Gott að nota eftir fótabað með Salvíu-baðolíu.

Fitness Fótakrem – Fitness Foot Balm 75ml

Mjúkt kremið smýgur fljótt og auðveldlega inn í húðina og hefur djúpvirkandi áhrif á fæturna, sérstaklega fyrir þurra fætur.

Rósmarín toner  fyrir hendur og fætur – Rosemary Leg & Arm Toner 100ml

Þetta létta og fitulausa lotion eykur blóðflæðið í leggjum og fótum; hindrar og kemur í veg fyrir fótkrampa, sinadrátt og þreytu. Fullkomið fyrir fólk sem vinnur mikið standandi. Setjið nokkra dropa í lófann og berið á fætur með strokum upp á við. Takið vatnið með ykkur í flugferðina til að létta álagið á fótunum, má setja yfir sokkabuxur. Einnig gott á axlir.

Svitalyktareyðir mildur –Deodorant Floral 50ml

Þessi mildi svitalyktareyðir inniheldur jurtir sem stuðla að því að róa mjög viðkvæma húð. Inniheldur enfin svitaheftandi efni eins og ál og engin rotvarnarefni.

Svitalyktareyðir frískandi –Deodorant Fresh 50ml

Blanda af salvíu og nornahesli gefa frískan ilm sem einnig hentar vel fyrir herra. Smýgur fljótt inn í húðina og skal notast sparlega. Inniheldur enfin svitaheftandi efni eins og ál og engin rotvarnarefni.

Silkipúður – Body Powder Silk 50g

Fínmalað náttúrusilki gefur viðkvæmri húð milda vörn. Púðrið er milt, dregur í sig mikinn raka og heldur húðinni þurri, mjúkri og þægilegri. Jafnar starfsemi húðkirtlanna og ver húðina geng óhreinindum. Gott að nota sem fótapúður gegn fótsvita. Hægt að nota sem þurrsjampó fyrir ljóst hár (t.d. á ferðalögum), þá sett í lófana og strokið gegnum hárið sem verður léttara.

Silkipúðrið má nota sem matt andlitspúður og getur verið gott fyrir feita húð að dusta örlitlu á andlitið eftir notkun á andlitsolíunni.  Einnig gott fyrir þá sem þurfa að venjast því að nota ekki svitaheftandi efni.            Gott sem ungbarnapúður.

Húðmjólk Kveðu – Quince Body Moisturiser 150ml

Í þessari húðmjólk er mjög mikill raki. Efni frá fræjum ávaxta kveðurunnans og frá blómum hans gefa húðinni ferskleika og teygjanleika. Aðrar eðal-jurtaolíur m.a. frá gulrót og jojoba vernda og mýkja húðina. Einnig góð húðmjólk fyrir herra eftir rakstur. Mild húðmjólk fyrir allar húðgerðir. Gott að nota með Þyrniplómuolíu (Blackthorn) til að koma í veg fyrir húðslit.

Húðmjólk Rósa – Rose Body Moisturiser 150ml

Þessi húðmjólk sem inniheldur efni úr rósablöðum í möndluolíu og rósavaxi er sérlega mild og gefur húðinni raka og gerir hana slétta og flauelsmjúka. Húðmjólk Rósa má einnig nota á viðkvæma barna – og ungbarnahúð.

Húðmjólk Sítrónu – Lemon Body Moisturiser 150ml

Nýtt !   Þessi húðmjólk er sérstaklega frískand.

Bað og sturta 

Það er hrein upplifun að nota tímann í gott bað eða sturtu. Því býður Dr.Hauschka upp á sturtugel og baðolíur sem innihalda efni úr lífrænt ræktuðum jurtum og olíum, sem næra húðina og mýkja. Sturtugelið er án sápu og því sérlega milt fyrir alla húð, einnig ungbarnahúð.

Sturtugel milt – Body Wash Floral 200ml

Fyrir allar húðgerðir. Þetta milda sturtugel með hlutlaust ph-gildi hreinsar húðina og er rakagefandi fyrir þurra og viðkvæma húð. Kremkennd froðan sem inniheldur mýkjandi Shea smjör, róar húðina og blanda af kjarna-olíum unnum úr rósum, sýrenu og jasmín lífga húðina og skynfærin með þægilegri lykt. Ath. sápulaust og því sérlega milt fyrir húðina.

Sturtugel frískandi – Body Wash Fresh 200ml

Þetta upplífgandi sturtugel inniheldur m.a. nornahelsi og svartþyrni sem styrkja húðina um leið og það gefur henni mildan þvott. Kjarna-olíur úr greip og sítrónu gefa hressandi lykt og styrkja húðina um leið og þær hreinsa hana vel.  Ath. sápulaust og því sérlega milt fyrir húðina.

Sturtugel sítrónu – Body wash Lemon  150 ml - nýtt frá Dr.Hauschka - sérlega frískandi ilmur úr ferskum lífrænt ræktuðum sítrónum

Baðolíur

Dr. Hauschka býður upp á fimm tegundir af baðolíum sem gera baðið að hreinni nautn. Þær innihalda hreinar ilmkjarna-olíur sem gefa líkama þínum jafnvægi.

Furunálabað – Spruce Bath 150 ml   - gefur jafnvægi - Furuolían ýtir undir djúpa öndun og hefur slakandi áhrif á líkama og sál. Mjög góð fyrir kvef og stíflur í ennisholum.

Lofnarblómabað – Lavendel Bath 150ml - slakandi og róandi -  Lavendel hefur þann eiginleika að draga í sig ljóskrafta og varma sólarinnar. Þess vegna hentar Lavendel baðolían gegn streitu sem fylgir nútíma lífsstíl. Hún róar rauða viðkvæma húð og hjálpar þér að byggja upp orku. Gott að nota á kvöldin til að tryggja góðan nætursvefn.

Rósmarínbað – Rosemary Bath 150ml - vermir og örvar - Olía unnin úr rósmarínrunnanum ber í sér mikinn varma. Ilmurinn vekur upp skynfærin um leið og hann endurnærir allan líkamann. Gott fyrir þurra húð. Gott að nota á veturnar og fyrir fólk sem á til að vera fót- og handkalt, notist þá 3-4 sinnum í viku. Örvar húðina og dregur því úr myndun appelsínuhúðar. Baðolíuna skal ekki nota fyrir svefn því hún er mjög örvandi.

Salvíubað – Sage Bath 150ml  - styrkir og endurnærir -Endurnærandi eiginleikar salvíunnar gefa öllum líkamanum nýjan kraft. Sérstaklega gott bað eftir líkamsrækt. Hentar vel sem fótabað fyrir þreytta og sára fætur. Salvíubað er mjög gott fyrir lélegt blóðflæði og fyrir kalda og þvala fætur. Ráðlagt að nota í skolvatn fyrir andlitshúð með bóluvandamál og bólgur.

Sítrónubað –  Lemon Bath 150ml Hressir, strekkir, endurnærir. - Sterkur hressandi ilmurinn af sólþroskuðum sítrónum vekur lífsandann. Notis á morgnanna fyrir frískleika og til að kæla í miklum sumarhita. Baðið stinnir slappa húð og stuðlar að minnkun appelsínuhúðar.

Hárvörur 

Hárið er meira en eitthvað fallegt til að sýna! Hárið túlkar frelsi og lífskraft og er hluti af því hvernig við komum fyrir út á við.

Hárnæring og þrjár tegundir af sjampói voru kynntar fyrir fjórum árum til að fullkomna hárvörulínu Dr.Hauschka. Þessar vörur hafa nú verið endurbættar. Árangurinn eru ferskir litir og frískandi ávaxtailmur og einfaldur hárþvottur.

Dr.Hauschka sjampóin gefa hárinu náttúrulegt yfirbragð, aukna fyllingu og halda hársverðinum heilbrigðum, sem er nauðsynlegt til að fá sterkt og fallegt hár.

Sjampóið frá Dr.Hauschka inniheldur ekki sápu og er því sérlega milt og er því gott fyir ungabörn

Hárnæring Jojoba & Marshmallow   250 ml - Endurnærandi fyrir allar hárgerði

Gefur náttúrulegan glans og fyllingu.   Jojoba og makadamiuhnetuolía gera hárið mjúkt og viðráðanlegt. Inniheldur jurtir sem sem gefa raka og styrkja hár og hársvörð. Hveiti- og mjólkurprótein vernda hárið og auka á teygjanleika þess og umfang.

Neem hárolía    150 ml - Djúpnærandi og uppbyggjandi fyrir skemmt hár og pirring í hársverði

  • Nærandi jurtaolíur úr Neem laufum og kamillublómum gefa hárinu nýtt líf og heilbrigði
  • Rósmarín og hveitikímolía örva blóðstreymi út í hársvörðinn sem eykur hárvöxt.
  • Ver hárið fyrir utanakomandi áhrifum.

Neem hárvatn     150 ml - Styrkir og nærir hár og hársvörð fyrir allar húðgerðir

Seyði úr Neem laufum, Brenninetlu, Birkiberki og Burdock rót styrkja og endurnæra hárið og hársvörðinn.

Gefur fíngerðu hári meiri fyllingu

Kemur í veg fyrir flösu og hárlos. 

Gott fyrir flösu, kláða og exem í hársverði. Er alveg fitulaust

Andlitsvörur

Dagleg Hreinsun - undirstaða í allri húðumhirðu

Hreinsikrem – Cleansing cream 50 ml

Fyrir andlit - gefur góða en milda djúphreinsun fyrir allar húðgerðir og viðheldur réttu sýrustigi húðarinnar. Gott að nota bæði kvölds og morgna.Skilur húðina eftir mjúka og hreina. Kornótt krem sem á alls ekki að nudda inn í húðina, heldur aðeins að dempa á húðina með léttum hreifingum, þannig að óhreinindin dragist upp úr húðinni.   Inniheldur lækningajurtir eins og morgunfrú, kamillu, jóhannesarjurt og smára, sem stuðla að heilbrigði húðarinnar.

Hreinsimjólk – Cleansing milk 145 ml

Fyrst og fremst hugsuð til að hreinsa andlitsfarða á kvöldin. Gefur flauelsmjúka yfirborðshreinsun fyrir allar húðgerðir án þess að raska náttúrulegu sýrustigi húðarinnar. Sérstaklega góð fyrir þurra og viðkvæma húð. Inniheldur mikilvægar olíur og jurtir sem vernda og styrkja húðina, sem verður mjúk og frískleg. Sérstaklega til að hreinsa af farða á kvöldin. Gott að nota einnig hreinsikrem á eftir til að fá dýpri hreinsun fyrir húðina.

Andlitsvatn – Facial toner 100 ml    

Örvar starfsemi húðarinnar og setur í gang rakaferli í húðvefnum, með styrkjandi og endurnærandi áhrifum sínum. Notað eftir hreinsun húðarinnar til að fríska hana og verja gegn óhreinindum. Sérstaklega gott fyrir nóttina eftir hreinsun með hreinsikreminu.    Gott sem after-shave fyrir herra.

Andlitsvatn special  - Clarifying toner 100 ml

fyrir óhreina húð – hreinsandi og græðandi

Inniheldur sólhatt og aðrar jurtir sem eru sótthreinsandi og koma jafnvægi á húð sem er í ójafnvægi.  Styrkir æðarnar og er blóðheinsandi og græðandi. Dregur úr bólgum í húðinni. Inniheldur engin þurrkandi efni. Dagleg notkun minnkar bólur og kemur í veg fyrir myndun fílapensla. Notað  eftir hreinsun húðarinnar kvölds og morgna og úðað beint á andlitið og látið  síast inn í húðina.   Gott after-shave fyrir herra sem fá bólur.

Dagleg umhirða húðarinnar

Andlitsmjólk – fljótandi dagkrem – Moisturizing day cream 30 ml og 100 ml

Þunnt rakakrem fyrir allar húðgerðir nema rauða sprungna húð. Kemur jafnvægi á rakastig húðarinnar, upplífgar og frískar föla, þreytta og þurra húð. Fer auðveldlega inn í húðina án þess að skilja eftir fitu. Gefur húðinni aukna útgeislun. Ath! hentar ekki fyrir bólótta og viðkvæma húð.

Kveðukrem – Quince day cream 30 ml 

Andlitsrakakrem sem mýkir og verndar húðina allan daginn gegna ytri mengun og frískar hana. Fyrir allar húðgerðir. Inniheldur virkar lækningajurtir og efni úr kveðuávexti sem er sérstaklega rakabindandi.   Gott “city-krem” .

Rósakrem – Rose day cream 30 ml

Veitir sérstaka vörn fyrir venjulega, þurra og viðkvæma húð. Efni úr rósum veitir húðinni jafnvægi og styrkir viðkvæma húð og húð sem hefur tilhneigingu til að fá æðaslit. Mikilvæg rósaolía, rósablóm og rósaber styrkja mótsöðukrafta húðarinnar. Hún verður slétt og mjúk. Rósakremið dregur úr háræðasliti, róar og græðir viðkvæma húð.  Mjög gott krem fyrir alla aldurshópa. Gott ungbarnakrem og einnig gott fyrir eldri húð.   Sérstaklega gott krem á andlitið í kulda.   Besta kremið fyrir húð með æðaslit.

Andlitsolía – Normalizing day oil 30 ml   

Kemur jafnvægi á feita og óhreina húð og jafnar rakastig hennar. Sérstaklega góð daglega fyrir feita, óhreina og grófa húð. Dregur úr fituframleiðslu húðarinnar og eykur  teygjanleika hennar. Ásamt rósakreminu veitir hún sérstaka vörn gegn sterku sólarljósi og kulda. Notuð með andlitsmjólkinni vinnur hún gegn fílapenslum og kemur jafnvægi á blandaða, feita og þurra húð. Andlitsolían inniheldur mjög græðandi gulrótarolíu. Andlitsolíuna má blanda saman við hvaða krem sem er og gefur þá húðinni extra vörn.

Litað dagkrem – Toned day cream   30 ml 

Þunnt andlitskrem fyrir venjulega, þurra og viðkvæma húð. Gefur fallegan lit. Er sérstaklega kælandi fyrir rauða og viðkvæma húð og húð með rósroða. Er einnig mjög nærandi krem. Hægt að nota eitt og sér eða blandað saman við önnur krem.

Litað fljótandi dagkrem – Translucent broze conentrate 30 ml

Fljótandi krem með lit fyrir allar húðgerðir. Notað yfir andlitskrem. Jafnar misfellur og gerir rauðar háræðar og ör í húðinni minna áberandi. Gefur húðinni fallegan gljáa og heilbrigt útlit. Kemur jafnvægi á raka og fitu í húðinni. 

Fyrir augun

Augnkrem – Eye contur day balm 10 g  

Minnkar hrukkur í kringum augun. Mýkir og verndar gegn ytri áhrifum. Notað að morgni dags fyrir farða. Styrkir augnsvæðið. Þarf mjög lítið.

Einnig gott til að fjarlægja maskara. Örlitlu magni nuddað milli fingranna til að hita það áður en borið er á húðina.

Augnkrem í túbu – Daily vitalizing day cream 12,5 m

Sérstaklega framleitt til að viðhalda raka, laga viðkvæma húð kringum augum og viðhalda jafnvægi. Frískandi krem. 

Augntraust – Eye solace 10 x 5 ampúllur 

Gott fyrir rauð, þrútin og þreytt augu. Jurtirnar augnfró (euphrasia) og fennel gefa þreyttum augum nýtt líf. Má nota bæði kvölds og morgna. Áhrifin aukast ef einnig er notað Augnkrem og það smurt þunnt á augnlokin og í kringum augun á eftir.

Fyrir varirnar

Varasalvi Lip care stick 4,9 g

Fyrir allar húðgerðir. Verndar mýkir og gefur raka. Mildar jurtir örva húðina og gefa heilbrigðar varir. 

Varakrem – Lip Balm 4,5 ml

verndar og kemur í veg fyrir að varir springi. Veitir góða vörn gegn kulda, sterkri sól og saltvatni. Kemur í veg fyrir ótímabæra hrukkumyndun í kringum munninn. Ef varirnar hafa orðið fyrir ertingu eða skaðast af verðri og vindum, er sérstaklega mælt með að notar Húðkúr N.

Sérstök meðferð fyrir andlitshúðina 

næringar-maskar

Þessi lína er fyrir húð sem þarf sérstaka meðferð vegna vandamála af ýmsum toga. Er fyrir allar húðgerðir en er sérstaklega fyrir húð sem er of feit, of þurr, of viðkvæm eða þarfnast einfaldlega endurnýjunar og endurnæringar.   Maskarnir eru notaðir einu sinni í viku, en það má einnig nota þá sem krem og eru þá bornir í þunnu lagi undir annað dagkrem.

Rósamaski – Firming mask 30 ml

Sérstaklega frískandi maski sem strekkir á húðinni, frískar hana og stinnir. Vinnur gegn hrukkumyndun og ofþornun.  Sérlega góður fyrir húð eldri en 30 ára.

Hreinsið húðina og berið þykkt á andlit og háls , einnig kringum augun. Látið virka í 20 mínútur. Fjarlægt með mjúkum klút og volgu vatni. Einnig hægt að nota sem sem krem, þá borið þunnt lag á húðin undir annað dagkrem.

Vitalmaski – Rejuvenating mask 30 ml

Sérstaklega endurnærandi maski sem hjálpar húðinni að endurnýjast. Góður fyrir örótta og skemmda húð (illa farna) húð. Einnig fyrir feita óhreina og viðkvæma húð og húð sem er rauð og með háræðaslit. Verkar róandi og frískandi. Húðin verður sléttari.  Sérstaklega góður maski fyrir yngri húð.   Notað eins og Rósamaski, einnig hægt að nota þunnt undir dagkrem.

Rakamaski – Moisturizing mask 30 ml

Þessi maski er  sérstaklega rakabindandi og viðheldur eðlilegum sveigjanleika húðarinnar. Kremaður lúxusmaski f. þurra húð. Kælandi eftir sólböð. Notist eins og vitalmaski  og rósamaski.

Andlitsgufubað – Facial steam bath 100 ml

Inniheldur hreinsandi lækningajurtir og er djúphreinsandi.   Setur af stað úthreinsun og leysir stíflur í húðinni. Eflir mótstöðukrafta húðarinnar. Sett í heitt vatn eða gufutæki. Fyrir alla húð til hreinsunar, en fyrst og fremst fyrir bólótta og óhreina húð.

Andlits-leirmaski – Cleansing clay mask 90g í krukku og 90g í béfi til áfyllingar

Djúphreinsandi maski fyrir óhreina húð. Maskinn leysir upp óhreinindi í húðinni á mildan hátt og dregur í sig.  Er einnig róandi fyrir húðina. Tvær matskeiðar af duftinu er hrært út í sama magn af vatni.   Blandan á að vera mjúk og kremkennd.  Maskinn ekki látinn þorna. Bleyttur vel og fjarlægður með volgu vatni eftir 10-15 mínútur.  Fyrir feita og óhreina húð notað einu sinni til tvisvar í viku. Fyrir venjulega húð einu sinni í mánuði.

Húðdkúr N – Rythmic night conditioner 10 ampúllur og 50 ampúllur

Fyrir nóttina – fyrir allar húðgerðir.

Þessi húðkúr er endurnýjandi efni í fljótandi formi til að nota á nóttinni. Þegar húðin er úr jafnvægi (of feit eða viðkvæm, eða undir álagi) þá er gott að nota húðkúrinn í staðinn fyrir Andlitsvatn. Þessi kúr gefur líf, kraft og næringu. Notist í 28 daga, 2 ampúllur í einu í 22 daga og síðan 1 á dag síðustu 6 dagana. Gott að nota þegar húðin er vanin af því að nota næturkrem. Fyrir venjulega húð nokkrum sinnum á ári til að styrkja húðina.

Húðkúr S – Rythmic conditioner, Sensitive 10 ampúllur og 50 ampúllur Fyrir viðkvæma húð og húð með rósroða. Sérstaklega hugsað fyrir háræðaslit og rauða húð. Styrkir háræðarnar í húðinni og kemur í veg fyrir myndun rauðra bletta í húðinni og háræðaslit. Best að nota í kúrum í 1-3 mánuði í einu. Notið aldrei kalt eða heitt vatn á viðkvæma húð, heldur mikið af volgu vatni.

Dr.Hauschka fyrir börn - húðvörur sem eru sérstaklega góðar fyrir börn

Margar af húðvörunum frá Dr.Hauschka henta vel fyrir ungabörn.

Rósakremið .........er gott  bæði sem andlitskrem og sem bossakrem.  Það er mjög verndandi og uppbyggjandi fyrir húðina.